Örbylgjubrauð er snilld sem ég uppgvötaði þegar ég tók út sykur og hveiti úr mataræðinu hjá mér. Hægt er að útfæra þessa uppskrift á svo marga vegu sem gerir það að verkum að maður fær ekki leið á henni. Ekki skemmir heldur hve fljótur maður er að útbúa brauðið.
Örbylgjubolla fyrir einn
-1 egg
-1tsk kókosolía
-3msk möndlumjöl
-2msk rjómi eða möndlumjólk
-1/2tsk vínsteinslyftiduft
Setjið allt í bolla sem búið er að smyrja með smjöri eða kókosolíu. Bætið hráefnum í bollann og pískið vel saman með gaffli.
Bætið við kryddi sem ykkur langar í. Hægt er t.d. að setja 1/2tsk sukrin og smá kanil eða oregano og hvítlaussalt.
Setjið í örbylgjuofn í ca 2 mínútur. Gott er að skera brauðið í tvennt og steikja á pönnu eða smyrja það strax og bæta við áleggi.
Einnig er hægt að setja deigið í vöfflujárn og fá þá eina góða vöfflu.