Èg er tiltölulega snyrtileg manneskja. Þríf eldhússkápana og sjálfa mig reglulega og trúi því að klór hreinsi sálina og sturtuna. Engu að síður langaði mig mest að hrækja í deigið sem èg var að hræra í gærmorgun þegar uppskriftin gargaði skyndilega „1/2 tsk. vatn“.
1/2 tsk vatn!!
Èg skil teskeiðarmælingar þegar um krydd er að ræða eða ger og vatn, en kom ðe fokk on!
Hvaða sýndarmennska er þetta? Hverju haldið þið að nokkrar dropar af vatni breyti í súkkulaðiköku? Sko, ekki kreminu heldur deiginu!
Èg sló upp nafni konunnar sem hafði póstað þessari tilgerð á bloggið sitt.
Já.is var með hana á skrá eins og flesta aðra smásemisfasista.
Ég slökkti á hrærivélinni (Rauð Kitchenaid – Ég hefði trúlofast Ingva Hrafni til að eignast hana) og valdi númer teskeiðartýpunnar. Maður á ekki að taka þátt í svona rugli. Stundum þarf bara að ræða málin og láta í sér heyra.
Eins og uppskriftin sé meira smart eftir því sem innihaldslistinn er lengri! Er ekki nóg að ég þurfi að gera grindarbotnsæfingar yfir Gestgjafanum til að réttlæta lesturinn? Er þetta næst? Dropateljarar? Ég hef ekki tíma í þetta kjaftæði!
„Sæl. Heldur þú að 1/2 tsk. af vatni breyti einhverju í súkkulaðikökuuppskrift? Hvaða helvítis stælar eru þetta? Ertu að meina að þú hafir svo djúpan skilning á blöndun þurr- og blautefna í köku að hálf teskeið af vatni skipti máli?
Ætlarðu kannski að segja mér að þú faldir klósettpappírinn áður en þú skeinir þér. Ertu menntaður bakari? Bloggið þitt segir að þú sért blómaskreytir. Ættirðu ekki bara að halda þig við það?
Finnst þér kannski hrikalega fyndið að sitja heima og skellihlæja við tilhugsunina um dauðþreyttar húsmæður um allan bæ að baksa við að mæla hálfa teskeið sem engu breytir bara af því að þú ætlast til þess?
Færðu þér vodkaskot í yfirlætiskasti í dýflissunni þinni og gargar úr hlátri?“
Ég ýtti á hringja-hnappinn bleik í framan af geðvonsku. Í því sem ég var að fullmóta kveðjuna muldrandi yfir i-padnum rak ég augun í síðustu setninguna.
„Tekið af vef allrecipes.com“
Það hringdi. Bæði á línunni og einhverjum bjöllum hjá mér.
Ég þarf að ná 8 tíma samfelldum svefni. Ekkert hveitigrasskot kemur í staðinn fyrir svefn.