Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sykurlausar súkkulaðikaramellur

$
0
0

Það hlaut að koma að því. Veikindin hafa tekið fjölskylduna í gíslingu. Maðurinn minn sem verður aldrei veikur byrjaði í síðustu viku. Á öskudaginn var yngri sonur minn svo veikur á Akureyri og gat ekki sungið. Ég krossaði putta og tær að dóttir mín myndi ekki vera veik. Síðasti leikskóla-öskudagurinn og hún vaknaði klukkan fjögur um nóttina, yfir sig spennt að nú væri kominn öskudagur. Hún náði góðum degi í leikskólanum og fór í fyrsta sinn að vinna sér inn nammi með fallegum söng. Um kvöldið kom hiti. Barnið er enn veikt, með hita og yngri sonurinn fær ekki að fara í skólann á morgun í kuldann með þennan ljóta hósta sem hann er búinn að vera með.

En hvað er skemmtilegt að gera með veikindagrislingum? Mínum finnst gaman að dunda sér í eldhúsinu. Mamman bjó til með hjálp barnanna karamellu sem við skárum svo saman í bita og pökkuðum inn í bökunarpappír. Þetta var skemmtilegt dútl.

IMG_9184_2

Súkkulaðikaramella

-3 dl rjómi

-65 g smjör

-5 msk. sukrin

-2 msk. sukrin gold

-2,5 msk. ósykrað kakó

-1 tsk. vanillu extract eða dropar

-salt klípa

-1/2 tsk. xhantan gum

Setjið rjóma, smjör, sætu, vanilludropa og kakó í pott og hrærið í á meðan hitnar. Þegar byrjar að sjóða, hrærið reglulega í svo ekki brenni við.

Látið malla í 15–20 mínútur. Takið af heitri hellunni og setjið smá salt og xhantan gum í pottinn og pískið vel við karamelluna.

Setjið bökunarpappír í lítið eldfast mót sem þolir frysti eða notið silikonform og setjið karamelluna í. Geymið í frysti í ca klukkustund.

Takið úr frysti og skerið í bita. Ef ykkur langar er hægt að klippa bökunarpappír niður og pakka karamellunni inn.

Geymið helst í kæli svo þær endist lengur.

 

IMG_9161
IMG_9141

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283