Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Frestið öllum nauðungarsölum á heimilum fólks“

$
0
0

Á borgarafundi sem haldinn var af Hagsmunasamtökum heimilanna í gærkvöldi, þriðjudagskvöldið 24. febrúar 2015, samþykktu fundarmenn svohljóðandi ályktun:

„Borgarafundur haldinn í Háskólabíói 24. febrúar 2015 beinir þeirri áskorun til Alþingis að samþykkt verði ný frestun á öllum nauðungarsölum á heimilum fólks, meðan beðið er dóms Hæstaréttar í máli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna, áður en núgildandi takmörkuð frestun rennur úr gildi þann 1. mars næstkomandi.“

Ályktunin hefur verið send öllum þingmönnum ásamt innanríkisráðherra, sem fer með umræddan málaflokk samkvæmt núgildandi forsetaúrskurði þar að lútandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283