Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Minningarorð um kröftuga og mæta baráttukonu

$
0
0

Á morgun föstudaginn 20. mars verður borin til grafar Bjarnfríður Léósdóttir. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju kl. 13:00. Með Bjarnfríði er fallin frá einn skeleggasti og einlægasti baráttumaður íslenskrar verkalýðshreyfingar síðari áratuga, Bjarnfríður Léósdóttir var 90 ára frá því í ágúst s.l.

Það er enginn efi að Bía fórnaði sér algjörlega fyrir hag láglaunafólks og þó einkum fyrir hag fiskverkakvenna. Þótt aldurmunur væri vel yfir 20 ár á milli okkar var ég alltaf aðdándi Bjarnfríðar.

Það geislaði alltaf af Bjarnfríði réttlætiskenndin og fórnfýsin í garða þeirra sem minnst máttu sín. Það var hennar hlutskipti að bera uppi þeirra eðlilegu réttlætiskröfur á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar og þá um leið að rekast á veggi innan ASÍ þar sem allt var morandi í allskonar bandalögum og klíkuklækjum feitra karla. Karlar sem iðulega voru á fylleríi þegar þeir mættu á stóra fundi innan ASÍ.

Þar voru á rorrinu karlar sem höfðu nánast ekkert brunns að bera í eðlilegri verkalýðsbaráttu. Þeir lögðu nánast aldrei neitt til málana opinberlega því þeirra var baktjaldamakkið bæði við aðra félaga í ASÍ og við aðila innan samtaka atvinnurekenda.

En innan ASÍ er félagsleg hugsun nú nánast löngu horfin. Það sést greinilega á háttarlagi verkalýðsfélaganna á Faxaflóasvæðinu þar sem nú er ríkjandi einstakslingshagsmuna hugsunarháttur og markaðslaunakerfi þar sem menn troða niður skóinn á hvor öðrum og samhygðin nánast horfin. Sjá má þetta einkenni og þroskaleysi í vinnubrögðum samtaka iðnaðarmanna um þessar mundir.

Kjarninn í lífskoðun Bjarnfríðar felst í þessum orðum:

Friður byggist á réttlæti
og réttlæti er forsenda friðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283