Áherslur í setningaræðu Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingar, frá landsfundi flokksins 2015.
„Mikilvægast af öllu eru húsnæðismálin. Ég boða róttækar breytingar á húsnæðiskerfinu. Við leggjum fyrir þennan fund heildstæðar úrbótatillögur. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í þessum málum. Dagur er byrjaður að auka framboð af leiguíbúðum í Reykjavík. En sú uppbygging mun taka mikinn tíma. Við getum ekki bara beðið. Ríkið verður að spila með. Við þurfum hækkun húsaleigubóta.
Við verðum að fjölga íbúðum til leigu og draga úr svimandi háu leiguverði. Þess vegna þurfa leigutekjur af einni íbúð að vera skattfrjálsar fyrir einstaklinga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðalverði.
Við þurfum að þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu fólki og tekjulágum fjölskyldum kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Samfylkingin ætlar að tryggja öllum húsnæði á sanngjörnum kjörum.“
Alvöru samráð á vinnumarkaði
„Ríkisstjórnin hefur komið samskiptum við aðila vinnumarkaðarins í uppnám. Svar okkar verður að vera að leiða nýtt samtal við aðila vinnumarkaðarins. Norræna samfélagsmódelið hefur aftur og aftur sýnt að það getur betur glímt við bæði uppsveiflu og samdrátt en önnur kerfi. Til þessa að það virki þarf ábyrga hagstjórn, sem byggir á stöðugleika, góðum aðgangi að erlendum mörkuðum og samræmda launastefnu sem ýtir undir hagvöxt og fulla atvinnu og dregur úr launamun og tryggir að enginn verði skilinn eftir. Það þarf umfangsmikil velferðarkerfi, sem byggja á afkomutryggingu og aðgengi að þjónustu sem tryggir mikla atvinnuþátttöku og hreyfanleika launafólks, ódýra menntun og heilbrigðis- og velferðarþjónustu sem fjármögnuð er með sköttum og tryggir jafnrétti í reynd. Og það þarf vel skipulagðan vinnumarkað, sem byggir á samspili milli lagasetningar og kjarasamninga.
Ekkert í þessu er sjálfgefið. Allt byggir þetta á samspili á milli stjórnmálaflokkanna og samtaka á vinnumarkaði. Allir þurfa að hafa næg áhrif, breidd og umboð til að leita eftir heildarlausnum og fylgja eftir þeim aðgerðum sem þörf er á.
Þess vegna eigum við að skuldbinda okkur til að stjórna á þennan veg: Við munum setja okkur almenna efnahagsstefnu með þessi markmið að leiðarljósi og leggja hana fyrir samráðsvettvang með aðilum vinnumarkaðarins. Að því loknu eigum við að leggja hana fyrir Alþingi og byggja hagstjórnina á víðtækri stefnumörkun til nokkurra ára í senn. Þannig bindum við vissulega okkur sjálf, en við leggjum grunn að stöðugleika til lengri tíma og náum hámarks ávinningi fyrir fólkið í landinu.“
Fólk á að geta orðið fyrir áföllum
„Það er margt sem bendir til þess að samfélagið sé orðið kalt og grimmt. Að við gefum ekki fólki færi á að lifa lífinu með reisn. Hugmynd jafnaðarstefnunnar er að fólk njóti þeirra mannréttinda að geta orðið fyrir áföllum. Að þurfa ekki að glata öllu. Við viljum búa í góðu samfélagi sem skapar öllum rúm. Vandinn í hnotskurn er ófullnægjandi bótakerfi sem tryggir ekki lífeyrisþegum fullnægjandi framfærslu.“