Árni Páll Árnason sigraði Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur í formannslagi Samfylkingarinnar með einu atkvæði. Hann er því enn formaður flokksins en með afar laskað umboð. Sigríður Ingibjörg tilkynnti framboð sitt seint í gærkvöldi eftir að frestur til að kalla til atkvæðagreiðslu meðal allra flokksfélaga var liðinn. Kosningin var því í höndum landsfundarfulltrúa, ekki allra meðlima flokksins.
Formaðurinn fer frá landsfundi með laskað umboð en munurinn gæti ekki verið minni, nema þá að ef til hlutkestis hefði komið. Árni Páll þakkaði landsfundarfulltrúum fyrir en tók skilaboðin augljóslega til sín. „Þetta er sérkennileg niðurstaða,“ sagði hann þegar hann ávarpaði landsfundinn eftir að tilkynnt var um úrslitin. Árni Páll sagði þessa niðurstöðu leggja sér ríka ábyrgð á herðar og hana myndi hann reyna að axla. „Við verðum að snúa bökum saman og sækja fram ef okkur á vel að farnast.“
503 voru á kjörskrá. 487 greiddu atkvæði. Árni Páll hlaut 241 atkvæði en Sigríður Ingibjörg 240.