Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heimagerð páskaegg – Sykur- og mjólkurlaus

$
0
0

Ekki allir geta farið út í búð og fengið páskaegg sem hentar þeim. Eiga jafnvel barn/börn sem ekki geta borðað mjólkurvörur eða sykur. Sumir eru vegan og vilja því ekki mjólkurafurðir þess vegna. En oft er erfitt fyrir fólk að finna súkkulaðiegg sem telst undir allt þetta. Sykurlaust, mjólkurlaust og vegan.

Ég bjó til lítil páskaegg sem ættu að geta glatt stóra sem smáa. Auðvelt er að útbúa þessi og gaman fyrir fjölskylduna að föndra saman.

Formið sem ég notaði fæst hjá Allt í köku í Kópavogi.

IMG_9260

Súkkulaðið.

1/2 kakósmjör, saxað

1/2 bolli kókosolía, bragðlaus (ef þig langar í egg með kókosbragði þarftu ekki bragðlausa, það smakkast líka vel)

40g sukrin melis

30g ósykrað kakó

10 dropar súkkulaði stevía

Kakósmjör og kókosolía sett í pott og brætt á lágum hita. Hrærið reglulega í.

Þurrefnum og stevíu blandað við og  hrært vandlega þar til alveg uppleyst. Getur tekið smástund.

Setjið súkkulaðið í formin, ef þið ætlið að fylla þau, setjið þá 1/3 súkkulaði í formið og frystið. Bætið við fyllingu og svo súkkulaði yfir.

Ég setti hnetusmjör í mín egg og það kom ljómandi vel út.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283