Steinunn Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin óperustjóri Íslensku óperunnar. Hún tekur við af Stefáni Baldurssyni, sem gegnt hefur starfi óperustjóra síðastliðin átta ár. Alls sóttu fimmtán einstaklingar um stöðuna þar á meðal söngvararnir Kristján Jóhannsson, Gunnar Guðbjörnsson, og Davíð Ólafsson.
RÚV greindi frá því í dag að ráðning Steinunnar hefði fallið í misgóðan jarðveg meðal óperusöngvara svo við dembdum okkur í það að spyrja Steinunni eftir að við höfðum óskað henni til hamingju með stöðuna hvað henni fyndist um þessar gagnrýnisraddir.
Steinunn tók okkur afar vel og sagði:
„Þessi gagnrýni kemur mér svolítið á óvart, þótt það sé ekkert óvenjulegt að ráðningar í leiðandi stöður séu gagnrýndar, því ég hef fengið svo ótrúlega jákvæð viðbrögð frá flestum leiðandi söngvurum landsins sem mér þykir mjög vænt um. Ég hefði ekki gefið kost á mér til starfa sem Óperustjóri ef ég hefði ekki þá reynslu og fagþekkingu sem þarf til að geta sinnt starfinu vel.
Eftir 5 ár sem tónlistarstjóri Hörpu hef ég mjög góða innsýn í tónlistarlífið á Íslandi sem og alþjóðlega og nýt góðs af mjög öflugu tengslaneti m.a. við helstu stjórnendur erlendra óperuhúsa og er vel að mér í starfsemi þeirra.
Hér er ekki verið að óska eftir söngvara heldur listrænum stjórnanda sem velur saman teymi til að standa að uppfærslum og daglegri starfsemi menningarstofnunnar. Hann þarf ekki að hafa alla sérþekkinguna sjálfur frekar en að hljómsveitarstjóri þarf ekki að kunna sjálfur á öll hljóðfæri hljómsveitarinnar sem hann stjórnar til þess að útkoman verði góð.
Stjórnandi þarf hins vegar að hafa listræna dómgreind og reynslu til að leiða þann hóp sem hann stjórnar farsællega og það er það verkefni sem ég hef tekið að mér og tel mig hafa þau formerki sem til þarf.
Ég hlakka mikið til að takast á við þetta mikilvæga verkefni og mun leggja mig alla fram um að gera það vel.“
——
Steinunn Birna Ragnarsdóttir fæddist í Reykjavík og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þaðan lauk hún einleikaraprófi á píanó áríð 1981. Kennari hennar var Árni Kristjánsson. Steinunn lauk síðan meistaragráðu frá New England Conservatory of Music í Boston árið 1987 undir handleiðslu Leonards Shure.
Steinunn starfaði um tíma á Spáni og kom þar fram sem einleikari og með ýmsum kammerhópum og hljómsveitum. Hún hefur hlotið ýmiss verðlaun og viðurkenningar fyrir leik sinn og hefur m.a. komið fram á tónleikum í Lettlandi, Sviss, Þýskalandi, Englandi, Frakklandi, Færeyjum, Bandaríkjunum og í Litháen. Hún hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum, hérlendis og erlendis bæði sem einleikari og flytjandi kammertónlistar og einnig hefur hún komið fram á ýmsum alþjóðlegum tónlistarhátíðum. Hún lék einleik ásamt Virtuosi di Praga hljómsveitinni í Rudolphinum tónleikasalnum í Prag í júní 2008. Meðal þeirra einleiksverka sem hún hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands eru píanókonsert eftir Edvard Grieg og Slátta eftir Jórunni Viðar, en hvort tveggja hefur verið gefið út á geislaplötu. Hún hefur gert margar geislaplötur, meðal þeirra er Ljóð án orða ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 1998. Einnig kom út diskurinn Myndir á þili árið 2008.
Steinunn Birna er stofnandi og listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar frá 1997-2010, en hefur starfað sem tónlistarstjóri Hörpu síðan í júlí árið 2010.