Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hatursáróður og fáfræði á Facebook

$
0
0

Stofnuð hefur verið Facebooksíðan Verndum börnin sem hefur að kjörorði sínu – Stöðvum innrætingu samtakanna 78 á skólabörnum. Síða þessi er tilefni þessa pistils.

Ég vissi að ég var öðruvísi frá unga aldri. Ég varð skotin í stelpu þegar ég var 10 ára. Ég lék mér í Barbie en það var aldrei pláss fyrir Ken. Ég átti engar fyrirmyndir, þekkti enga lesbíu og engin slík varð á vegi mínum fyrr en ég var komin hátt í tvítugt.

Ég gat ekki talað um það við neinn og ég gat ekki fengið útskýringar, leiðsögn eða samþykki frá neinum. Þannig fór stór hluti æsku minnar og unglingsára í óþarfa skömm og sjálfsfyrirlitningu.

Það er EKKI hægt að innræta kynhneigð. Það er ekki hægt að smitast af henni. Það er ekki hægt að snúa gagnkynhneigðum né samkynhneigðum til einhvers annars en þess sem við erum fædd til.

Saga mín er ekkert einsdæmi. Fjöldi fólks hefur gengið í gegnum helvíti á jörð vegna þess að því var kennt að halda kjafti og skammast sín allt of lengi. Afleiðingar slíkrar þöggunar eru margvíslegar, kvíði, þunglyndi, sjálfskaðandi hegðun svo sem misnotkun áfengis og lyfja og svo framvegis…

Ef þú ert móðir eða faðir og barnið þitt er hinsegin ber þér skylda til að styðja við það, samþykkja það eins og það er og veita því það svigrúm sem það þarf til að vera það sjálft.

Kannski þekkir þú ekkert til hinsegin fræða, kannski finnst þér þetta flókið og erfitt. Þess vegna er ennþá mikilvægara að barnið þitt geti fengið fræðslu og ráðgjöf í skólanum sínum.

Mundu bara að þó að barnið þitt heyri talað um einhverfa, örvhenta, rauðhærða eða útlendinga í skólanum, þá eru engar líkur á því að barnið vakni sem slíkt daginn eftir.

Við myndum ekki krefjast þess að foreldrar fatlaðra barna „díluðu“ við það heima. Við myndum ekki halda því fram að það væri óþarfi að troða umræðunni um fatlaða og þeirra „sérþarfir“ upp á öll hin börnin í skólanum.

Slík tilhugsun er ömurleg og hver sem er getur séð hversu sjúkt það er að halda slíku fram.
Við getum öll verið með skoðun á trúarbrögðum, unnum matvörum og auglýstum hjólahjálmum í skólum.

Kynhneigð er ekki val, hvorki barna né foreldra. Þess vegna er fásinna að líkja þessu við slíka umræðu. Líklega er 1 af hverjum 10 börnum hinsegin í íslensku skólakerfi (eins og annarstaðar). 1 af hverjum 10 börnum sem kannski lifa í skömm og niðurlægingu af því að þau vita ekki af hverju þeim líður eins og þeim líður og vita ekki sitt rjúkandi ráð.

Ef barnið þitt segist vera hinsegin eftir hinsegin fræðslu merkir það einungis að það hefur annað hvort fundið hugrekki til að segja frá einhverju sem það hefur alltaf vitað eða að púslið sem vantaði er komið í ljós og við blasir ný og falleg heildarmynd.

Mig langar að biðja ykkur kæru vinir að tilkynna þessa síðu sem hatursáróður.
Ef ykkur líkar við síðuna er best að þið af-vinið mig því að þá eigum við enga samleið.

Peace


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283