Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hættuástand á Landspítalanum

$
0
0

Eftirfarandi forstjórapistill eftir Pál Matthíasson birtist á vef Landspítalans þann 08.05.2015. Inntak pistilsins á erindi við almenning í landinu.

pall-matthiasson

Páll Matthíasson skrifar:

„Verkfall fjögurra aðildarfélaga BHM sem starfa á Landspítala hafa nú staðið í 32 daga. Róðurinn er farinn að þyngjast allverulega og fyrir liggur að margir stjórnendur og starfsmenn eru orðnir mjög áhyggjufullir. Sífellt fleiri telja sig ekki geta tryggt öryggi sjúklinga okkar við þær aðstæður sem skapast hafa.

Verkfall af þessu tagi hefur veruleg áhrif á starfsemi spítalans og ljóst þykir að áhrifin eru umtalsvert meiri og alvarlegri en af nýyfirstöðnu læknaverkfalli. Yfirstandandi verkfall, sérstaklega geislafræðinga sem eru í ótímabundnu verkfalli, hefur valdið verulegum áhrifum á meðferð sjúklinga. Áríðandi er að landsmenn og deiluaðilar geri sér ljóst að þó Landspítali veiti bráðaþjónustu eru önnur regluleg verkefni þess eðlis að þau má ekki draga endalaust enda getur þá vandinn orðið bráður og hættulegri og þess eru dæmi nú þegar.

Mikilvægt er að árétta að þar sem greiningarrannsóknir hafa nú dregist úr öllu hófi hefur Landspítali ekki að fullu yfirsýn yfir þann sjúklingahóp sem hann sinnir og getur ekki tryggt að sjúklingum sé rétt forgangsraðað. Við óttumst því að ekki sé hægt að tryggja öryggi sjúklinga.

Fresta hefur þurft fjölda skurðaðgerða, hundruðum dag- og göngudeildakoma og þúsundum rannsókna. Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta eru ekki aðeins tölur á blaði heldur eru þarna að baki sjúklingar, oftar en ekki alvarlega veikir sem verða fyrir vaxandi óæskilegum áhrifum. Sem dæmi má nefna að þó að flestir skilji að ýmsar bæklunaraðgerðir geti beðið um tíma getur slíkt ekki gengið til lengdar, þjáningar sjúklinga vaxa eftir því sem biðin lengist og líkur á alvarlegum vandamálum aukast.

Hvað meðferð krabbameinssjúkra varðar þá er staðfest að tafir hafa orðið í lyfjameðferðum, biðlistar fyrir geislameðferðir hafa lengst fram úr hófi og rof hefur orðið í meðferð sjúklinga. Fleira mætti nefna en niðurstaða okkar helstu sérfræðinga er að mikil hætta er á því að krabbameinssjúklingar í rannsóknum, meðferð eða eftirliti á Landspítala geti orðið fyrir skaða, fyrir utan þann kvíða sem þetta óvissuástand veldur sjúklingum.

Gæði þeirrar þjónustu sem er nú unnt að veita á Landspítala í yfirstandandi verkfalli eru umtalsvert lakari en alla jafna. Það er mat sérfræðinga okkar að raunveruleg hætta sé á að einhver hafi skaðast vegna afleiðinga verkfallsins, muni gera það eða jafnvel láta lífið.

Verkföll og vinnudeilur í heilbrigðisþjónustu eru afar flóknar í framkvæmd og það ríður á að gott samstarf sé á milli stéttarfélaganna og þeirra stofnana þar sem verkföllin hafa áhrif. Í viðkvæmri og fjölbreyttri starfsemi eins og á Landspítala má búast við sveiflum í starfseminni og því ríður á að læknisfræðilegt mat sé forsenda undanþága frá verkföllum. Þetta hefur að mestu gengið eftir hér, þó með þeirri undantekningu að Landspítali hefur gert alvarlegar athugasemdir við afgreiðslu undanþágubeiðna Félags geislafræðinga. Mikilvægt er að þeir hnökrar sem orðið hafa þar leysist strax, það má ekki dragast.

Það er með þungum huga sem ég rita þessar línur og biðla ég enn og aftur til deiluaðila að draga ekki að ná samkomulagi. Mikið liggur við.“

Páll Matthíasson

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283