Granóla er ágætis dútlprójekt á helgidagsmorgni meðan unglingurinn dormir. Ein útgáfa er svona:
Þrír bollar grovvalsede havregryn, einn af graskersfræjum, annar af sólblómafræjum, einn af kókosflögum og 5/4 bolli af hráum pekanhnetum, gróft söxuðum (ég notaði cashew en reyndar má nota hvað sem er í staðinn fyrir hvað sem er).
Þurrefnunum blandað með lúkunum. Ef maður vill hafa þetta vel sætt og slá í gegn hjá yngri kynslóðinni má bæta við hálfum bolla af ljósum púðursykri. Ég gerði það síðast en hefði sleppt því fyrir mig einan.
Seilist þá granólagerðarmaður í trekvartbolla af hlynsírópi, hálfan af extrajómfrúr ólívuolíu og teskeið af sjávarsalti, hrærir vel saman við, dreifir á djúpa bökunarplötu ofan á smjörpappír og stingur inn í 150°heitan ofn i 45 mínútur. Róta upp tvisvar á ristunartímanum einsog heyi væri snúið á túni í þerri, passar í hléum frá öðru dútli.