Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nina Kraviz verður með raftónlistarveislu á Paloma á morgun!

$
0
0

Technodrottningin Nina Kraviz mun spila fyrir fullu húsi á Paloma annað kvöld.  Tónleikarnir eru um margt sérstakir, en þar mun stórstjarnan Nina Kraviz troða upp á stað sem tekur aðeins 300 manns sem er óvenjulegt fyrir tónlistarmann af hennar stærðargráðu.

15.05.2015 Trip party

Tónleikarnir eru á vegum Trip, sem er hljómplötuútgáfa Ninu Kraviz en henni til fulltyngis verða einnig Exos (Arnviður Snorrason), Bjarki (Bjarki Rúnar) og breski plötusnúðurinn Blawan. Partýið á Palóma markar upphaf tónleikaferðalags Ninu, Exos og Bjarka en þau munu spila á fjölda viðburða í Bandaríkjunum og Evrópu á næstu vikum.  Uppselt er í forsölu en skipuleggjendum hefurr tekist að stækka svæðið töluvert og því hefur örfáum miðum verið bætt í sölu á Lucky Records og mögulega verða nokkrir miðar til sölu við dyrnar annað kvöld eftir klukkan 00.30.

Exos

Gestum tónleikanna mun einnig bjóðast að hlýða á Ninu og föruneyti í helli áður en partýið byrjar á Paloma. Enginn veit hvar hellinn er að finna, en rúta mun keyra miðahafana á vit ævintýranna. Í nýlegu viðtali í DJ- Kicks mix var Nina spurð hvers vegna Ísland hafi orðið fyrir valinu og vildi hún meina að það væri „af því að þetta er einn æðisgengnasti staður veraldar“ og bætti því við að hana hafi langað að koma til Íslands allt frá því að hún var barn. Þá segir hún íslenska raftónlist hafa haft mikil áhrif á sig þegar hún fór að hafa áhuga á teknó tónlist. Núna komi hún oft til Íslands, hafi tvo íslenska listamenn á samning í hljómplötuútgáfunni sinni og hafi alltaf langað að halda partý á Íslandi. Lítið partý með góðri stemmningu uppfullu af vinum og fólki sem fílar að dansa og fílar sömu tónlistarstefnu og hún sjálf.

NK

Nina seldi 100 miða á tónleikana á alþjóðavettvangi fyrir allra hörðustu aðdáendur sína til þess að gera þeim kleift að koma á sérstakan stað eins og Ísland til þess að njóta og dansa við tónlistina. Nina er mjög spennnt fyrir tónleikunum og mjög ánægð með staðsetningu viðburðarins á Paloma, en á staðnum eru tvö rými, eitt uppi sem rúmar 200 manns og annað minna og nánara niðri sem rúmar 100 manns. Gestir tónleikanna geta því átt von á mjög nánu og góðu setti í höndum afbragðs tónlistarfólks annað kvöld. Trip partýið hér á Íslandi er haldið 2 vikum fyrir útgáfu safnplötu á vegum Trip, en meiri upplýsinga um þá plötu er að vænta mjög fljótlega.

Blawan

Það eru spennandi tímar framundan hjá Ninu og félögum en eins og áður sagði eru þau á leið út í heim að spila á alls konar hátíðum og tónleikum um víða veröld. Nina, mun ásamt þeim Exos og Bjarka, halda til Detroit í Bandaríkjunum og spila í eftirpartýii á Movement-hátíðinni þann 24. maí, sem er stærsta danshátíð Bandaríkjanna. Síðan liggur förinni heitið til New York og þaðan verður flogið til Evrópu þar sem þríeykið mun spila í þó nokkrum partýum, þar á meðal í Barcelona um miðjan júní.

Bjarki

Ekki er öll von úti enn fyrir þá sem ekki náðu að tryggja sér miða á þessa þrælspennandi tónleika því enn er möguleiki á að tryggja sér miða við dyrnar eftir miðnætti annað kvöld. Takist það ekki þá kemur fram á vef albumm.is að stefnan sé tekin á að halda fleiri sambærileg partý í Reykjavík í haust með stærra úrvali listamanna og jafnvel á stærri stað heldur en Paloma. Trip partýið á morgun ætti að vera upphafið að reglulegum viðburðum á vegum Trip, sem haldnir gætu verið allt að tvisvar til þrisvar á ári ef allt gengur að óskum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283