Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kanilsnúðakladdkaka

$
0
0

Eftir vinsældir sítrónukladdkökunnar hér á heimilinu langaði mig að prófa fleiri tegundir af þessari uppáháldsköku margra Svía. Fann eina sem öskraði á mig á hembakat, ég meina kanilsnúðakladdkaka? Af hverju var ég ekki búin að prófa hana fyrr? Skil þetta bara ekki!

Ég bakaði hana óvart aðeins of lengi, kladdkökur á alls ekki að baka í gegn, þær eiga að vera aðeins óbakaðar í miðjunni. Það kom hins vegar ekki að sök – hún var sjúklega góð (má vera að ég sé ekki hlutlaus, ég stenst ekkert sem er með kanil í!). Eins og allar kladdkökur þá er mjög fljótlegt að skella í hana, kladdkökur eru ekki þeyttar heldur öllum hráefnum bara hrært saman með sleif og inn í ofn. Gæti ekki verið einfaldara :)


Kanilsnúðakladdkaka
Kanilsnúðakladdkaka
10–12 bitar

150 g smjör
2,5 dl sykur
1 tsk. vanillusykur
1 msk. kanill
Salt á hnífsoddi
2,5 dl hveiti
2 egg
Perlusykur til skrauts

Aðferð
Stillið ofninn á 200°c. Bræðið smjörið í potti og látið kólna aðeins. Setjið afganginn af hráefnunum út í pottinn og hrærið með sleif.

Hellið deiginu í smurt springform, 22–23 cm stórt. Stráið perlusykri yfir ( er ekki viss um að hann sé yfirhöfuð til heima, má alveg sleppa). Bakið kökuna í 15–20 mín. eftir því hversu blauta þið viljið hafa hana. Berið fram með þeyttum rjóma.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283