Í gær samþykktu Írar með kosningum að breyta stjórnarskrá sinni svo samkynhneigðir mættu ganga í hjónabönd. Þetta er mikið fagnaðarefni og veigamikill áfangi í réttindabaráttu samkynhneigðra þar í landi.
Þessi 101 árs gamla írska kona Kitty Cotter sem er kennari á eftirlaunum lét ekki sitt eftir liggja og útskýrði á Facebook afstöðu sína rétt fyrir kosningar.
„Ég er 101 árs. Ég trúi á jöfn réttindi öllum borgurum til handa. Þessvegna mun ég kjósa með hjónaböndum samkynhneigðra í komandi kosningum“
Barnabarn hennar birti svo þessa mynd af ömmu sinni á Facebook með textanum:
„Ofur amman mín klædd regnbogans litum tilbúin að kjósa.“
Ljósmynd í haus © Irish Examiner Ltd. All rights reserved