Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Virkjum landann

Námskeiðunum og hvatningarherferðinni VIRKJUM LANDANN hefur verið ýtt úr vör. Tvær íslenskar athafnakonur sem búa í Hong Kong, Kristrún Lind Birgisdóttir og Hulda Þórey Garðarsdóttir, standa að þessu verkefni sem snýr að því að virkja eigin afl íslenskra landsmanna til þess að skapa sér atvinnutækifæri í gegnum veraldarvefinn.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Strulla og Hulda awards

Hulda og Kristrún trúa því að ónotuð tækifæri liggi hjá fólki í byggðarlögum landsins og áður en farið er í stóriðju til þess að búa til atvinnu sé e.t.v. hægt að aðstoða fólk til þess að nota hæfileika og kunnáttu sem víða er til staðar og markaðssetja hana á ódýran og auðveldan hátt.

Því settu þær upp námskeiðin Virkjum Landann, sem er í stuttu máli samantekt á þeirra eigin reynslu í því að markaðssetja fyrirtæki sitt í Hong Kong, ljósmæðraþjónustu sem þær hafa rekið í 14 ár. Hafa þær staðið að langmestu leyti sjálfar að auglýsingagerð, beinni og óbeinni markaðssetningu og notað netið á mjög frjóan hátt til þess að breiða út boðskap sinn og selja þjónustuna.

Virkjum Landann er 5 tíma námskeið sem skiptist í eftirfarandi:

  • Okkar reynsla og köllun
  • Vefmiðlar og félagsmiðlar – yfirlit
  • Grunnur að markaðsstarfi á netinu. samvinna félagsmiðla
  • Google Risinn og að halda honum góðum.
  • Þarftu að kunna allt?
  • Yfirlit um notkun og möguleika á:
  • Etsy, Pinterest, Instagram
  • Blogg, fréttabréf
  • Facebook, Google+, Linkedin, Twitter
  • Youtube
  • Myndvinnsla fyrir alla
  • Vefsíðugerð og Google drive

Námskeiðið hentar öllum – líka þeim sem vilja einfaldlega auka við þekkingu sína á netinu og möguleikum þess. Vefskóli er í boði fyrir þá sem ekki komast á námskeiðið og þegar því lýkur, til þess að auka þekkinguna frekar.

www.virkjumlandann.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283