Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekki missa af Sirkus Íslands í sumar!

$
0
0

Síðasta sumar sáu rúmlega 21.000 manns sýningar Sirkus Íslands. Í ár er ferðalaginu heitið til Vestmannaeyja, Blönduóss, Fáskrúðsfjarðar og Siglufjarðar. Einnig verður tjaldað á Klambratúni í Reykjavík. Miðasalan fyrir sirkussumarið 2015 hefst í dag mánudag þann 1. júní kl. 10:00.

Þrjátíu sirkuslistamenn manna sirkuslestina og sjá þeir einnig um öll störf í sirkusnum. Þeir sýna loftfimleika, klæðast trúðabúningum, elda mat, selja miða, rúlla sér á hjólaskautum, leika ljón, spúa eldi, poppa, snúa kandíflosi, sjá um miðasölu, húlla, takast á loft, stela senunni, og setja upp og taka niður Jöklu, sem er fyrsta farandsirkustjaldið á Íslandi.

_MG_4293

Jökla

Þrjár mismunandi sýningar verða sýndar á hverjum stað. Heima er best er stóra fjölskyldusýningin, S.I.R.K.U.S. er krakkasýningin – hún er sérsniðin að leikskólaaldri, þó ekki á kostnað eldri áhorfenda og svo er það fullorðinssirkusinn Skinnsemi sem er sirkuskabarett með fullorðinsbragði,  bönnuð innan 18 ára.

Í sumar verða erlendir gestalistamenn með, sérstaklega á Fullorðinssirkusnum Skinnsemi:


Paula Alvalá er brasilískur kontortionisti (twittervinir okkar stinga upp á íslensku orðunum snákakona, beygla og sambrotstæknir) sem bæði fettir sig og brettir á jörðu niðri og uppi í loftinu. Hún verður með okkur í allt sumar og kemur fram í Skinnsemi – Fullorðinssirkus.

paula

Mama Lou er kraftakona frá Bandaríkjunum sem mer epli á tvíhöfðanum, rífur símaskrár í tvennt og brýtur matprjóna með rasskinnunum. Hún verður með á sýningunni Skinnsemi í Vestmannaeyjum. Hún hefur áður komið til Íslands og komið fram með sirkusnum.

mamalou

Matthias Goed er austurrískur og alinn upp í sirkus. Móðir hans er loftfimleikadís og fósturpabbi hans er sirkusstjóri í Circus Aotearoa á Nýja Sjálandi. Matthias var einnig með okkur í fyrrasumar og sýnir stórhættuleg jafnvægisatriði. Hann verður með okkur á Siglufirði og í Reykjavík í ágúst, bæði í fjölskyldusýningum og fullorðinssýningum.

matthias

Gay Pride-helgina verður sirkusinn með sérstakan gest á Skinnsemi – boylesquestjörnuna The Luminous Pariah frá Seattle.

lumi

Þar að auki eru, eins og áður sagði, þrjátíu íslenskir sirkuslistamenn. Þrír þeirra, þau Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim M. Kvaran og Bjarni Árnason, nema við sirkuslistaháskólann Codarts í Rotterdam og vinna hjá sirkusnum yfir sumartímann. Um tuttugu manns starfa við sirkusinn yfir vetrartímann. Auk þess að ferðast um landið og koma fram við ýmis tækifæri, starfrækir sirkusinn sirkusskóla í Laugardalnum í Reykjavík til að búa til sirkusgræðlinga svo sirkuslistirnar blómstri um aldur og ævi á Íslandi.

Sirkusinn safnaði fyrir sumarferðalaginu á Karolinafund.com og gat nú keypt búnað til að auðvelda tjalduppsetningu og niðurtekt. Það hættulegasta við að vera í sirkus eru ekki heljarstökkin, loftfimleikarnir, djögglhnífarnir eða eldatriðin heldur er það við uppsetningu og niðurrifið á tjaldinu sem flest meiðsli verða. Fyrir þá peninga sem söfnuðust í ár gátum við keypt búnað sem styttir tíma tjalduppsetningar um nokkra klukkutíma og dregur úr slysahættu svo um munar. Þeir sem styrktu ferðalagið fá póst frá sirkusnum á mánudag til að ráðstafa miðakaupunum sínum.

Miðasala á Sirkus Íslands er í gegnum www.miði.is. Tryggið ykkur miða í tíma!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283