Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Með eld í brjósti

$
0
0
Þann 19. júní  á 100 ára kosningarafmæli íslenskra kvenna verða listakonurnar Harpa Rún Ólafsdóttir og Elín Anna Þórisdóttir með gjörning í Ráðhúsinu klukkan 17:00. Gjörningin kalla þær, Með eld í brjósti.
IMG_1295
Þær hafa síðan í febrúar verið að safna gifsmótum af brjóstum allskonar kvenna úr samfélaginu og steypa úr þeim kerti. Þær munu svo með hjálp frá kvennakórnum Kötlu brenna öll brjóstin við hátíðlega athöfn. Á meðan mun kórinn flytja lagið „Brennið þið vitar“. Þetta verður að sögn listakvennanna epískur gjörningur tileinkaður baráttu kvenna fyrir jafnrétti.  Kertin eru 100 talsins til að tákna fjölda ára sem íslenskar konur hafa haft pólitíska rödd í samfélaginu.
IMG_1424
Í tilkynningu frá listakonunum segir:
„Brjóstin eru marglita vegna fjölbreytileikans sem býr í konunni. Þau standa þétt saman og mynda saman fallega heild.  Brjóstin eru einnig eins mismunandi og þau eru mörg. Loginn táknar baráttubálið sem við viljum kveikja í brjóstum kynsystra okkar. Hann táknar engu síður þá viðvörun að eldurinn má alls ekki slokkna því ennþá er að mörgu að hyggja í málum kvennréttindabaráttunnar.“
IMG_1434
„Lagið “Brennið þið vitar” þykir okkur tilvalið þar sem það fjallar um baráttu og hættur sem auðvelt er að yfirfæra á baráttu kvenna.  Ljósið í vitanum táknar leiðarljós og það ljós sem við viljum hafa fyrir augum okkar í þessari mikilvægu baráttu.“
Vefsíða um gjörningin veitir nánari upplýsingar.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283