Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lögreglan er hrekkjusvín: Hættið að eyðileggja líf, plís

$
0
0

Nú um helgina er haldin árshátíð glæpamanna Íslands. Þúsundir krimma, stórra sem smárra,  safnast saman og þykjast öruggir í fjöldanum. En grunlausir eru stigamennirnir um hina vösku laganna verði sem ætla að veita þeim eftirför og sitja um samkomuna.

Nei, ég er ekki að tala um einhverja fjölskylduhátíð í Skagafirði, ég er að tala um Secret Solstice; tónlistarhátíðina þar sem fjársvelt ríkisstofnun ætlar að fylla alla sali af starfsmönnum bæði í og án einkennisbúninga.

Lögreglumennirnir munu þó ekki bara vera í fínni launaðri dægradvöl. Hin duglega íslenska lögregla ætlar að hafa uppi á glæpamönnum sem engan glæp hafa framið, og traðka óvart á mannréttindum og lögum í eldmóði sínum.

Glæpamennirnir sem lögreglan ætlar að hafa uppi á gætu haft í hyggju að meiða einhvern; einhver gæti hafa hótað að skaða aðra manneskju líkamlega gegn hennar vilja. Jafnvel taka líf. En það eru ekki glæpirnir sem lögreglan hefur áhuga á.

Ástæðan gæti verið þjófnaður; það að taka eitthvað sem ekki tilheyrir manni sjálfum. Þarna gætu verið gengi sem fara ofan í vasa ókunnugra án þess að biðja um leyfi. Skaða þannig aðra. En það er ekki ástæðan fyrir hópferðum lögreglunnar á tónlistahátíðir.

Ástæðan fyrir fjölmenni ríkisstarfsmanna á Secret Solstice er lífsstílsglæpur vímuefnanna (samt auðvitað ekki góðu vímuefnin eins og áfengi og tóbak, heldur vímuefni á borð kannabis, „alsælu“ og amfetamín). Lífsstílsglæpir eru glæpir án fórnarlambs, líkt og guðlast og páskabingó. Vissulega geturðu skaðað sjálfan þig á vímuefnum en það er val einstaklingsins. Rétt eins og það er mitt val að drekka óhóf af koffíni og borða hættulegt magn ruslfæðis.

Munurinn er sá að lögreglan situr ekki fyrir fitubollum í Nammilandi.

05:56 til 06:10 gæti verið hvernig lögreglan upplifir sig á Secret Solstice.

„Vímuefni eyðileggja líf! Lögreglan er að bjarga fólki frá sjálfu sér!“

Þið heyrið ekki fréttir af dæmum eins og þessu sem ég rek hér, enda ekkert alltof krassandi eða til myndband af því. Svona gerist á hverjum degi en við bara heyrum ekki af því. Dæmi sem þessi eru líka bara orð gegn orði og við vitum hvernig lögreglunni gengur þar. Ætlarðu að trúa þeirri stofnun landsins sem fær hvað mest traust í skoðanakönnunum, eða ætlarðu að trúa þessum gaur:

þessi gaur

Atvikið sem ég er að tala um henti vin minn. (Og nei þetta er ekki „vinur minn“ sem ég er að „versla fyrir“ þegar ég fer í Adam&Evu.) Þeir voru tveir saman í bíl og lögreglan kom að þeim með beiðni um að leita. Þeir segja já og lögreglan finnur ekkert. Þá biður lögreglan um að fá að leita á öðrum þeirra og honum sagt að girða niður um sig. Vinur minn reynir að neita en löggan er strax komin ofan í klofið á honum eins og illa alinn hundur og finnur þar kannabis. Ef ég reyndi svipað yrði ég væntanlega settur á skrá og látinn kynna mig fyrir nágrönnunum sem kynferðisafbrotamaður.

En lögreglan þarf ekkert að hafa áhyggjur af slíku og dregur piltinn bara upp á stöð. Þar hóta þeir honum að annaðhvort leyfi viðkomandi þeim að leita í íbúðinni sinni eða að þeir muni hringja í móður hans og segja frá. Eins og þú gerir við einstakling yfir tvítugu rétt eftir að þú grípur um pung hans í leyfisleysi.

Þeir fá leyfið og það mun gleðja þig að heyra að skattpeningum þínum var vel varið þegar lögreglan hafði loksins uppi á þessum þremur grömmum.

Vinur minn fór á sakaskrá, missti vinnuna og einnig brot af stoltinu.

https://www.facebook.com/communismofficial/photos/a.296729313827233.1073741828.296724473827717/448212535345576/?type=1&theater

http://www.sidewalkbubblegum.com/don%E2%80%99t-you-know-how-drugs-can-ruin-your-life/

Því miður er ekki góður endir á þessu máli. Jú, lögreglan er búin að bjarga honum frá eiturlyfjadjöflinum og sjá til þess að líf hans komist á réttan kjöl (m.a. með því að henda honum aftur í langvarandi atvinnuleysi) en fleira átti eftir að gerast.

Aðrir í vinahópnum tóku eftir því að lögreglan sýndi þeim meiri áhuga. Þeir fóru að lenda í „handahófskenndum“ stöðvunum lögreglunnar þegar þeir óku um bæinn, sem hluta af „almennu eftirliti“. Einn var búinn að kynna sér vel réttindin sín og gat farið sína leið óáreittur með skýrum tilvitnunum í stjórnarskrána. Annar var ekki svo lánsamur. Honum var sagt að hann bara yrði að fara upp á stöð fengju þeir ekki að leita. Sem var lygi. Á stöðinni var hann settur í þvagpróf, og mældist THC í blóðinu því hann hafði reykt viku áður. Þar með voru réttindi hans farin.

Félagarnir í þessum hópi lenda reglulega í svona en geta ekkert gert.

Ég er hræddur því hlutverk mitt í þessum vinahópi er ekkert leyndarmál. Ef svo ólíklega vildi til að ég fengi bílpróf væri ég líklega stöðvaður og mína eina forvörn væri að geyma eintak af stjórnarskránni í hanskahólfinu, svona eins og að lemja fjörulalla með Saltaranum.

Auðvitað er þessi reynsla sem ég lýsi bara orð gegn orði.  Þetta hljóta nú að vera einhverjir vandræðagemsar fyrst lögreglan þurfti að hafa afskipti af þeim. Og þetta er nú líka bara vinum mínum að kenna, ekki satt? Þeir áttu ekkert að vera að fikta með eiturlyf. Ef þeir vildu ekki vera handteknir áttu þeir ekkert að vera að þessu. Eins og kófdrukknar og léttklæddar unglingsstúlkur gátu þeir bara sjálfum sér um kennt hvernig fór.

Ég veit ekki alveg frá hverju lögreglan var að bjarga vini mínum, en þær hættur virðast hafa innihaldið mannorð, atvinnu og öryggi.

hans landa

„Fyrst kjallarinn þinn er tómur, þá hlýtur þér að vera sama þó við rífum hann í sundur með byssukúlum?“

„Ef þú hefur ekkert að fela hefur þú ekkert að óttast.“

Uppáhaldssetning þeirra sem styðja auknar valdheimildir lögreglunnar. Ég býst við að þeir sem tali þannig hafi ekki verið í hlutverki lítilmagnans þegar kom að einelti í þeirra skólagöngu.

Það er ástæða fyrir því að mannréttindi eru sett í stjórnarskrár og alþjóðlega sáttmála. Það er ástæða fyrir því að hópar þurfa að standa í ströngu við að kynna fólki réttindin, því ekki gerir lögreglan það. Þvert á móti virðist lögreglan líta meira á réttindi eins og óþarfa skriffinnsku.

Ég man vel eftir öllum klukkutímunum í kynfræðslu þar sem mér voru gefin ráð og smokkar fyrir athöfn sem var álíka nálægt mér og ferð til tunglsins, en ég man ekki eftir einu einasta skipti þar sem mér var kennt að segja „Nei.“ við valdstjórnina.

Ef þú átt barn eða yngra systkini hefurðu örugglega lent í því að barnið feli andlit sitt í höndunum til að komast hjá skömmum. Nokkurn veginn þannig er það þegar almennir borgarar leita réttar síns.  Í besta falli er hlegið að þeim og löggan gerir það sem hana langar, í aðeins verra falli er farið með einstaklinga niður á stöð.

Þessi gaur er ekkert grunsamlegur og yrði örugglega látinn í friði af hálfu lögreglunnar.

Þessi gaur er ekkert grunsamlegur og yrði örugglega látinn í friði af lögreglunni.

„Lögreglan er ekki rétti vettvangurinn til að kvarta.“

Hvernig gat þetta atvik sem ég lýsti áður verið lögreglunnar sök? Kannski gekk hún of langt gagnvart vini mínum með hegðun sem væri í besta falli talið kynferðisbrot væri gerandinn almennur borgari. En lögreglan var bara að vinna vinnuna sína

Íslenska lögreglan setti ekki lögin. Hún hefur ekki valdið til að breyta þeim. Og það er í starfsskyldum hennar að framfylgja þeim.

En það er álíka afsökun og „Vinur minn sagði mér að gera það!“.

Stormsveitir þriðja ríkisins framfylgdu bara lögum, þrælahaldarar Bandaríkjanna störfuðu samkvæmt lögum og galdramenn Íslands voru brenndir samkvæmt lögum. Að vísa í lög eða annað form yfirvalds er að flýja ábyrgð. Það skiptir ekki máli hvað guð, lög eða yfirmaður segir þér að gera: ábyrgðin er þín.

Við vitum líka að lögreglan velur hvaða lögum hún framfylgir. Ár eftir ár fylgist hún með kolólöglegum páskabingóum án þess að aðhafast. Auðvitað, enda væri fáránlegt að handtaka fólk fyrir hluti sem ekkert eru að skaða aðra. Þarna hunsar lögreglan lög og skyldur í þágu borgaranna og skynsemi. Kannski var ástæðan líka að á bingóinu var mikið af fólki yfir þrítugu, en það á oft auðveldara en það yngra með að nýta réttindi og standa á sínu.

Lögreglumenn bera fulla ábyrgð á þeim lífum sem þeir eyðileggja með vinnu sinni, hvort sem það er í formi þess að berja mótmælendur eða káfa á ungu fólki. Kannski gengur íslensku lögreglunni gott eitt til með offorsi sínu en enn og aftur afsakar það ekki afleiðingarnar. Þau geta sleppt þessum aðgerðum, þau geta virt réttindi fólks, og þau geta gefið þetta gagnslausa stríð upp á bátinn.

Maður sem bara vann vinnuna sína, og það samviskusamlega.

Jú, kannski „á fólk bara ekkert að vera með þessi efni“. En þá áttu gyðingarnir heldur ekkert að vera gyðingar, blökkumenn ekkert að vera svartir og galdramennirnir ekki… ekki liggja svona vel við höggi. Oscar Wilde átti bara ekkert að vera opinberlega samkynhneigður, Spegillinn átti bara ekkert að gera grín að fermingum og…

“When you criminalize things that aren’t real crimes, you still create real criminals.” – Penn Jillette

Þetta er beiðni mín til lögreglumanna: hættið að sóa tíma og peningum í eitthvað jafn fáránlegt og t.d. smáskammta af kannabis.

Valdið er ykkar. Bara spurning hvort valdatrippið sé verðmætara en samviskan.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trending Articles