Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ævintýrin á Secret Solstice – Tónlistin, lögreglan og hátíðin í heild

$
0
0

Secret Solstice-hátíðin var haldin í annað sinn um helgina sem leið og heppnaðist vel í flesta staði. Tónlistarúrvalið var hreint út sagt frábært og veðrið lék við hátíðargesti sem voru að vonum í góðu skapi. Hátíðin var því ánægjuleg en nokkur atriði skyggðu þó á upplifun hátíðargesta eins og lélegt aðgengi að vatni og það að einungis var hægt að komast inn um eitt hlið inn að hátíðarsvæðinu sem olli löngum biðröðum á háannatímum. Eitthvað var um stjörnustæla og drama meðal listamannanna á hátíðinni en Busta Rhymes var heldur góður með sig og slagsmál brutust út í framleiðsluherbergi hátíðarinnar.

Lögreglan nánast söm við sig

Lögreglan lét sig ekki vanta á hátíðina en hún virðist þó hafa dregið nokkuð úr leitarherferð sinni frá því í fyrra þar sem aðeins 13 einstaklingar voru teknir með ólögleg vímuefni í ár miðað við hátt í 70 tilfelli í fyrra. Meðlimir Snarrótarinnar – Samtaka um borgaraleg réttindi – voru á staðnum og fylgdust grannt með starfsháttum lögreglu. Þau tóku meðal annars upp myndband þar sem sjá má lögreglu framkvæma, að því er virðist, ólögmæta leit á einum hátíðargesta sem hafði neitað að leyfa lögreglu að leita á sér. Þá lenti einn hátíðargesta í þeirri leiðu reynslu að vera ranglega vændur um að vera óeinkennisklæddur lögreglumaður og þurfti að yfirgefa hátíðarsvæðið til þess að komast hjá áreiti annarra gesta.

Smekkfull og smekkleg dagskrá

Dagskráin um helgina var smekkfull af hæfileikaríku tónlistarfólki rétt eins og í fyrra. Undirritaðri þótti skemmtilegast að berja FKA Twigs augum en hún hafði einstaklega svala sviðsframkomu og dansaði þokkafull á himinháum hælum í glitrandi múnderingu sem hæfir stórstjörnu eins og henni. Þá kom plötusnúðurinn KINK skemmtilega á óvart með einstaklega flottu setti inn í Aski á sunnudaginn. Að auki stóðu upp úr The Wailers, Charles Bradley, Green Velvet, Miss Kitty og Flight facilities. Vonbrigði hátíðarinnar voru Wu-Tang Clan sem tókst einhvern veginn ekki að ná góðri stemningu og spiluðu lítið af sínum þekktustu lögum.

FKA Twigs var flott

FKA Twigs var flott

Verstur var þó leynigesturinn Busta Rhymes sem var með rosalegan dólg. Stórstirnið lét bíða eftir sér í fjörutíu mínútur og hóf tónleikana síðan á því að bjóða ónefndum tónleikagesti kynfærin á sér. Rapparinn frægi brást ókvæða við þegar einn ljósmyndaranna snerti hann óvart og sendi risavaxinn lífvörð sinn blótandi á eftir ljósmyndaranum til þess að henda honum út úr ljósmyndapyttinum. Þá virtist Busta eitthvað ósáttur við launin sín fyrir framkomuna og lét áhorfendur sína endurtekið hrópa „pay him more!“ að loknum nokkrum lögum til þess að hann héldi áfram að spila. Ekkert sérstaklega kurteis náungi sem sagt. Á móti kemur að flestir aðrir listamenn voru einstaklega elskulegir og þakklátir fyrir að fá að spila fyrir hátíðargesti í miðnætursólinni. Þar má sérstaklega nefna hljómsveitina Flight Facilities, en söngkona þeirrar sveitar óskaði konum gleðilega hátíð og flutti cover af laginu Crave You með Lana del Ray í tilefni 19. júní. Fleiri myndir má nálgast hér.

Busta Rhymes að bjóða kynfærin sín

Busta Rhymes að bjóða kynfærin sín

Lífvörðurinn risavaxni

Lífvörðurinn risavaxni

Enn ekkert aðgengi að rennandi vatni

Aðgengismál voru því miður ekki með besta móti í ár og virðist hafa farið aftur frá því í fyrra. Einungis einn inngangur stóð gestum til boða til þess að komast inn og út af hátíðarsvæðinu og hann var staðsettur í dágóðri fjarlægð frá bílastæðunum á svæðinu. Langar biðraðir mynduðust á köflum sem er afturför frá því í fyrra þegar hátíðarhaldarar buðu gestum upp á þrjú hlið til inn- og útgöngu. Þá var aðgengi að rennandi vatni lítið sem ekkert rétt eins og í fyrra. Það leiðréttist því hér með að hátíðarhaldarar hafi tekið til sín gagnrýnina frá því í fyrra eins og ég hélt fram í góðri trú í síðasta pistli um hátíðina, en Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri sagðist hafa séð þessa dularfullu vatnskrana með eigin augum. Engin svör fengust frá fjölmiðlafulltrúum hátíðarinnar hvorki fyrir né eftir hátíðina um vatnsaðgengi, sjúkratjöld eða aðrar skaðaminnkandi aðgerðir af hálfu hátíðarhaldara þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir höfundar. Því get ég því miður ekki frætt ykkur meira um þá hlið málsins, lesendur góðir, annað en að ég veit að það var sjúkratjald á staðnum.

Lögreglan var með hund á svæðinu

Lögreglan var vel sýnileg á hátíðinni og mætti með hund inn á svæðið þvert á orð aðalvarðstjórans sem sagði hundinn aðeins ætlaðan til gæslu utan svæðisins. Höfundur vill nýta tækifærið til þess að benda lögreglu á að hundar eru ekki sérlega góðir til fíkniefnagæslu á hátíðum sem þessum, þeir gefa oft ranga niðurstöðu, skapa andrúmsloft ótta og óþæginda meðal hátíðargesta og vilja valda því að fólk sem hefur efni á sér gleypir þau öll í óðagoti til þess að hundurinn renni ekki á lyktina. Þetta vill oft valda óþarfa ofskömmtunum og vandræðum.

Lögreglan hafði þó hægar um sig í fyrra og tilkynnti aðeins um 13 kærð fíkniefnabrot tengd hátíðinni í ár en þau voru um sjötíu í fyrra. Enda var minna um að óeinkennisklædd lögregla tæki heilu hópana afsíðis til þess að leita í vösum þeirra, væntanlega vegna þess að slíkar aðgerðir eru andstæðar lögum líkt og lögreglunni hefur ítrekað verið bent á. Eitthvað var þó um ólögmæta leit lögreglu og undirrituð hefur séð myndband þar sem óeinkennisklæddur lögreglumaður sést vaða í vasana hjá hátíðargesti án leyfis. Þá var hundur látinn þefa á manninum en sýndi honum engan áhuga. Lögreglumennirnir gengu síðan í burtu með tómar hendur án þess að skrifa skýrslu á staðnum eins og þeim ber skylda til þegar þeir framkvæma leit. Kvennablaðið mun birta þetta myndband mjög fljótlega.

Tilkynning lögreglunnar secret solstice

 

Síðasta grein höfundar náði miklum vinsældum – en ekki hjá öllum

Fyrri grein mín um áætlaðar löggæsluaðgerðir lögreglunnar vakti talsverða athygli um helgina en ekki voru allir á eitt sáttir með innihald hennar. Lögreglumaður nokkur vísaði í hana á Facebook og sagðist vona að lögreglan myndi nota allar löglegar heimildir til þess að leita á „dópistalýðnum í Laugardalnum“. Annar maður lenti í því leiða atviki að fjöldi hátíðargesta virtist sannfærður um að hann væri einn hinna óeinkennisklæddu lögreglumanna sem lögreglan hafði heitið að yrði meðal hátíðargesta og vildi meina að greinin mín síðasta hefði verið að hvetja til nornaveiða. Báðum var þó ansi heitt í hamsi þegar þeir létu þessi orð falla.

11219527_10152768361892202_6592781917312442204_n

Lögreglumaðurinn sem um ræðir heitir Guðmundur Fylkisson og er aðalvarðstjóri, best þekktur fyrir að hafa nýlega tekið að sér það hlutverk innan lögreglunnar að finna „týndu börnin“ sem strjúka að heiman. Stöðuuppfærsluna skrifaði hann á meðan hann var staddur á Landspítalanum við sjúkrabeð nákomins ungs ættingja sem hafði ofskammtað sér vímuefni. Hann taldi fólk hafa misskilið skrif sín á þá vegu að með ummælunum ætti hann við alla hátíðargesti Secret Solstice en hann vildi meina að þar hefði hann einungis átt við vímuefnasala á við þá sem hefðu fært ættingja hans efnin sem hann ofskammtaði sér. Guðmundur sagði síðar að hann vildi óska að lögreglan hefði leitað á þessum ættingja sínum og náð þannig að koma í veg fyrir þessa leiðu reynslu.

Undirrituð getur ekki tekið undir með Guðmundi, hefði ættingi hans verið tekinn í leit af lögreglumanni hefði ungmennið með réttu átt að vera skráð á sakaskrá fyrir vörslu efnanna. Þannig myndi það eiga töluvert erfiðara með að fá vinnu, sækja nám erlendis og þurfa að takast á við að samfélagið stimpli sig sem glæpamann fyrir vörslu á vímuefnum til eigin nota. Erfitt er að skilgreina það sem svo að það sé hlutverk lögreglunnar að leita í vösum fullorðins fólks til þess að bjarga því frá sjálfu sér. Hvað þá að þær björgunaraðferðir feli í sér að viðkomandi verði skráður á sakaskrá.

Ógrynni rannsókna hafa sýnt fram á að forvarnir og skaðaminnkandi aðgerðir eins og fræðsla um örugga notkun vímuefna eru miklu líklegri til þess að vernda heilsu ungs fólks heldur en harðar löggæsluaðgerðir líkt og lögreglan stundar hérlendis. Ungt fólk mun leita í vímuefni hvað sem hverju banni líður en oft veit það ekki hvernig nota á efnin né hve mikið skal taka af þeim. Óeinkennisklæddir lögreglumenn, hundar og stórir hópar einkennisklæddra lögreglumanna á hátíðum sem þessum skapa ótta meðal ungs fólks og nærvera þeirra vill oft breyta neysluhegðun unga fólksins á hættulegan hátt. Þau taka jafnvel öll efnin sem þau eru með á sér til þess að lenda ekki í því að vera „tekin“ með þau í fórum sínum.

Umrædd stöðufærsla var skrifuð í miklum tilfinningaþrunga og því skiljanlegt að Guðmundi hafi ekki tekist að koma skoðunum sínum frá sér þannig að vel skildist. Engin afsökunarbeiðni hefur borist frá Guðmundi sem ræddi málið í Harmageddon í gær.

Hvað varðar manninn sem lenti í því að vera ranglega grunaður um að vera óeinkennisklæddur lögreglumaður ber mér að leiðrétta nokkur atriði. Í frétt Vísis er maðurinn, sem heitir Jóhann Haukur Gunnarsson, ranglega titlaður varaþingmaður Pírata en hið rétta er að hann er í áttunda sæti á lista Pírata í Reykjavík og getur því ekki talist varaþingmaður. Hitt er það að með pistli mínum var ég ekki að hvetja til nornaveiða heldur að fólk hefði augun opin fyrir óeinkennisklæddum lögreglumönnum sem hygðust njósna um gesti hátíðarinnar. Ábyrgðin á áreitinu sem Jóhann varð fyrir er á höndum þeirra sem hann áreittu. Undirrituð bað Jóhann um að útskýra við hvað hann ætti með ummælum sínum en svar hefur ekki borist þegar þessi orð eru rituð.

Færsla Jóhanns

Góð skemmtun

Sólstöðuhátíðin árið 2015 heppnaðist því vel í flesta staði. Frábært veður, góð stemning, góð gæsla, góðir gestir og hreint út sagt kyngimögnuð tónlist. Lögreglan lét minna fyrir sér fara en í fyrra en á þó langt í land með að læra á þær löggæsluaðgerðir sem kollegar hennar í Evrópu nota helst á hátíðum sem þessum. Hátíðarhaldarar eru enn og aftur minntir á nauðsyn þess að hafa gott aðgengi að rennandi vatni fyrir gesti sína en það getur komið í veg fyrir ofskömmtun vímuefna, ofdrykkju og ofþornun ásamt ýmsum öðrum kvillum. Fyrir utan hvað það er umhverfisvænt að láta fólk ekki kaupa fleiri tugi plastflaskna undir vatnið sem öllum er lífsnauðsyn að drekka.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283