Prjón getur verið tímafrek iðja og því spá margir í að prjóna flík sem er sígild og hægt að nota lengi. Þá er eins gott að valið sé garn sem þolir mikla notkun og heldur sér vel. Hér er ein slík peysa úr Handknit Cotton frá Rowan sem er milligróft bómullargarn. Uppskriftin er hér: Rowan-LATA-peysa-handknit-cotton-enska
Litirnir eru svart og hvítt en peysan gæti líka verið falleg í öðrum litasamsetningum. Mynstrið er einfalt og auðvelt að læra. Og já, hún er prjónuð í stykkjum, enda skynsamlegt þegar svona snið er notað. Það er alls ekki seinlegra, en kallar á að flíkin sé fallega saumuð saman. Frágangur er alltaf punkturinn yfir i-ið og skiptir máli.
Hægt er að leita sér upplýsinga í bókum og á netinu um hvernig á að sauma prjónuð stykki saman. Á ensku heitir þessi saumur mattress stitch og ef þið leitið á netinu getið þið fundið mörg myndbönd þar sem þessi aðferð er kennd. Markmiðið er að sauma þannig saman að samskeytin sjáist lítið eða ekki neitt.
Margir leggja handavinnu til hliðar á sumrin en aðrir njóta þess að geta prjónað utandyra í birtunni. Ég er ein af þeim og tek alltaf með mér prjón í ferðalög. Mig grunar að ég sé ekki ein um það..
Njótið sumarsins!