Þegar maður er byrjaður að útbúa ís þá er ekki hægt að hætta. Enda alveg óþarfi þegar sumarið er að ná hámarki. Börnin mín elska að fá sér boost og eru farin að dunda sér sjálf við að útbúa og ákváðu að prófa að frysta í ísformum afganginn hjá sér. Kom líka svona ljómandi vel út. Yngri sonur minn á heiðurinn af þessari uppskrift.
Ávaxtaís
1 banani
250g AB mjólk
2msk Sukrin Gold (má sleppa en minnkar súra bragð af berjunum)
150g frosin hindber (má skipta út í önnur ber)
Setjið allt í blandara og maukið vel. Setjið í ísform og frystið.