Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kalmarhem, sænskt „not for profit“ leigufélag

$
0
0

Fólksfjöldi í Kalmar kommun er um 65.000 manns, eða helmingur á við Reykjavík. Í Kalmar á og rekur Sveitarfélagið 4.700 leiguíbúðir af ýmsum stærðum. Íbúðirnar eru fyrir alla þjóðfélagshópa, óháð aldri, tekjum eða þjóðfélagsstöðu. Allar íbúðir eru í langtímaleigu. Þeir sem vilja geta búið þar alla ævi. Allt viðhald er innifalið.

Screen Shot 2015-07-16 at 09.52.13

Dæmi um verð : 1 hb 42 m2 : 58.000 ISK (3700 SEK)

4 hb 96 m2 118.000 ISK ( 7490 SEK)

KH4

Hiti er innifalinn í leiguverðinu, trygginga eða fyrirframgreiðslu er ekki krafist. Leigjandi skal hafa tekjur sem samsvarar tvöfaldri leiguupphæð á mánuði. Leigjandi má vera á vanskilaskrá, en má ekki skulda leigu.

Kalmar kommun lítur á rekstur leiguíbúða sem sjálfsagðan hluta af þjónustu við íbúa svæðisins. Þak yfir höfuðið er jú lífsnauðsyn, rétt eins og vatnsveita, sjúkraþjónusta, skólar vegir o.s.frv.

Þessar íbúðir eru vinsælar og fá færri en vilja. Kalmar áformar að byggja 75 íbúðir árlega til að halda í horfinu næstu árin.

Fyrir utan ofangreindar íbúðir reka einkaaðilar nokkur þúsund leiguíbúðir í Kalmar. Verðið og skilmálar eru svipað og hjá Kalmarhem, sem ræður ferðinni á þessum markaði í krafti stærðar sinnar Fjöldi leiguíbúða á svæðinu er því upp undir tíu þúsund.

Ef sama hugsun gilti í reykvískum húsnæðismálum væru líklega 20.000 leiguíbúðir í Reykjavík reknar með þessum hætti.
Í Kalmar þykir leiguverð hátt, og í augnablikinu eru aðeins 3 íbúðir að losna hjá Kalmarhem. það eru 67 manns á biðlista.

Hvernig væri ástandið í Kalmar ef reykvíska húsnæðisformúlan væri notuð á svæðinu?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283