Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hinsegin dagar hafnir!

Fréttatilkynning:

Hinsegin dagar í Reykjavík eru í ár haldnir hátíðlegir í sautjánda sinn og verður hátíðin glæsileg sem endranær. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi en nærri 30 viðburðir standa gestum til boða frá þriðjudeginum 4. ágúst til sunnudagsins 9. ágúst. Í boði verða tónlistarviðburðir, ljósmyndasýningar, sirkusveisla, dansleikir og fræðsluviðburðir, svo fátt eitt sé nefnt, og allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Sem fyrr nær hátíðin hámarki með Gleðigöngu Hinsegin daga og Regnbogahátíð við Arnarhól laugardaginn 8. ágúst þar sem líkt og fyrri ár má búast við tugþúsundum gesta.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hinsegindagar2015forsíða3

Þema Hinsegin daga í ár er heilsa og heilbrigði og eru dagskrárviðburðir og efnistök dagskrárrits í samræmi við það. Meðal þess sem litið er til er aðgangur hinsegin fólks að heilbrigðisþjónustu, gæði þeirrar þjónustu sem veitt er og brotalamir sem þar má finna. Sérstakir þættir sem huga þarf að hvað varðar heilsu hinsegin fólks eru enn fremur í sviðsljósinu, svo sem HIV, tilfinningaleg, andleg og félagsleg líðan og sú læknisþjónusta sem intersex fólk og trans fólk þarf og þarf ekki. Með því að leggja áherslu á heilsu og heilbrigði vilja Hinsegin dagar stuðla að opinni umræðu um þá staðreynd að hinsegin fólk er fjölbreyttur hópur sem þarf oft á sérhæfðri heilbrigðisþjónustu að halda sem er sérstaklega sniðin að heilsufarslegum þörfum hópsins. Nauðsynlegt er að hinsegin samfélagið og landsmenn allir geri þá kröfu til íslenskra stjórnvalda að þessum þörfum sé mætt innan félagsmála- og heilbrigðiskerfisins.

Dagskrá Hinsegin daga og allar nánari upplýsingar um hátíðina má finna á www.hinsegindagar.is og www.facebook.com/reykjavikpride.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283