Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Viltu breyta gamla ömmulampanum?

$
0
0

lampHér ætla ég að sýna ykkur 65 ára gamlan lampa sem kærastinn minn erfði eftir ömmu sína. Ég tók þá miklu áhættu að gera hann upp (hann var reyndar búinn að vera í geymslu í mörg ár) og þó ég segi sjálf frá er hann FRÁBÆR eftir breytingu!

lamp2

Ok, hér er lampinn fyrir breytingu. Ég fjarlægði kertin sem höfðu það hlutverk að vera perustæði, tók af „hattinn“ (þennan í miðjunni) og límdi perustæði þar ofan í. Allt rafmagn endurnýjaði ég þ.e.a.s snúruna, slökkvarann og klóna.
lamp3
Hann var nú fallegur fyrir breytingu …. en mikið fallegri eftir breytingu, einhvern veginn skarpari línur.

Sprautun.is sá um að undirvinna lampann og spreyja hann. Frábær vinnubrögð og sanngjarnt verð. Ég valdi svartan lit í gljástigi 40. Skerminn keypti ég í Habitat. Mér fannst hann of hvítur að innan svo ég klippti til eftir máli einnota dúk (eins og maður kaupir oft til skreyta á veisluborð). Að lokum penslaði ég yfir dúkinn með lími. Útkoman var stórglæsileg og það er skemmst frá því að segja að kæró var himinlifandi!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283