Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Litla gula hænan og húsnæðismálin

$
0
0

Hænan var orðin leið á íslenskum leigumarkaði. Hún átti engan fastan samastað. Hún hafði flögrað milli bjálka árum saman, en fann aldrei öruggan stað fyrir hreiðurgerð.

Hænan fékk viðtal hjá forsætisráðherra landsins. Hann tók vel á móti henni og kynnti fyrir henni það sem hann kallaði „Nýja hugsun í húsnæðismálum alifugla“.

Ný hugsun í húsnæðismálum? spurði hænan.

Já, sagði forsætisráðherrann, við gefum þeim hænum sem eiga sín búr 80 milljarða af almannafé.

En hvað um mig? spurði hænan. Og allar hinar hænurnar? Heilt hænsnahús? Við erum leigjendur – fáum við ekki 80 milljarða líka?

Nei, en þessar aðgerðir nýtast ykkur líka.

Hvernig?

Þið getið búið í búrum foreldra ykkar fram undir fimmtugt og safnað ykkur fyrir eigin búri.

Nú fauk í hænuna. Hún lokaði augunum og galaði á forsætisráðherrann: Foreldrar mínir eru Kentucky fried. Hvernig á ég að geta safnað fyrir búri? Þegar öll eggin mín fara í leigu?

Hænan opnaði augun.

Forsætisráðherrann var farinn í kaffi og meðlæti.

Á leiðinni út kíkti hænan við hjá velferðarráðherra.

Hvar á ég að búa? spurði hænan.

Ráðherrann lét hænuna hafa stafla af erlendum katalógum um draumaíbúðir, gámaeiningar og notuð hjólhýsi.

Fylgstu svo með bloggsíðunni minni, sagði ráðherrann.

Ráðherrann hélt svo áfram að byggja fjólublátt Barbiehús á skrifborði sínu.

Hænan tók nú til sinna ráða. Hún safnaði málsaðilum saman í sjónvarpsþátt um húsnæðismál.

Hver vill útvega okkur örugg og ódýr hænsnabúr til kaups eða leigu? spurði hænan.

Ekki ég, sagði ríkisstjórnin. Ekki ég, sögðu lífeyrissjóðirnir. Ekki ég, sögðu sveitarfélögin. Pass, sögðu verkalýðsfélögin.

Hænan flögraði upp á bjálka og hugsaði ráð sitt. Hún stofnaði stjórnmálaflokk sem hét almenn Ali búr. Með þann eina tilgang að koma hænum í örugg hreiður. Hún vann stóran sigur.

Hún efndi til arkitektasamkeppni og voru módel af verðlaunatillögum hafðar til sýnis í Kringlunni. Aðrar hænur vöppuðu um og skoðuðu búrin í nokkra mánuði og skiluðu inn athugasemdum og breytingartillögum.

Síðan tóku sveitarfélögin sig saman og byggðu búrin víða í borgarlandinu.

Eftir það voru heil hverfi af fúnum hjöllum sem ekki voru hænum bjóðandi rifin og brennd.

Nú vaknaði hænan af sínum blundi. Þetta var bara draumur.

Hún var læst inni í litlu búri ásamt þúsund öðrum alifuglum.

Eigandinn að búrinu átti líka svínabúið við hliðina.

Hann át egg og beikon. Hann átti líka fiskinn í sjónum.

Pólverjinn sem tíndi eggin fékk sér smók.

Hann gleymdi að loka búri hænunnar.

Hún notaði tækifærið og flögraði út í frelsið.

Hænan býr nú í Noregi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283