Til allrar hamingju hefur orðið mikil vitundarvakning í heiminum um að kaupa ekki varning frá löndum sem stunda þrælahald eða nota börn til framleiðslustarfa. Þessi stuttmynd ber heitið „Fingraför“ og undirtitill myndarinnar er í lauslegri þýðingu:
Sögur þeirra sem bjuggu til fötin sem þú klæðist fylgja þér.
Leikstjóri myndarinnar er Mary Nighy og framleiðandi er White Lodge. Myndin var frumsýnd á tískuvikunni í London og var gerð með það fyrir augum að varpa ljósi á aðstæður fólks í þriðja heiminum sem vinnur við fata og skartgripaframleiðslu.