Þessi uppskrift er frábær sem bæði nesti fyrir okkur í vinnuna eða sem smá trít á kvöldin eða helgar.
Eins og með flest allt sem ég geri er þessi uppskrift auðveld og fljótleg. Hef þetta ekki lengra þar sem ég er á fullu í eldhúsinu að búa til nýjar uppskriftir
Þykki hlutinn af kókosmjólkinni, 400ml dós.
(notið kókosvatnið svo í boost)
1msk ósykrað kakó
1msk Sukrin Melis flórsykur
1/2msk vanilludropar eða extract
Þeytið kókosrjómann og bætið við restinni af hráefnunum. Setjið í skál og inn í kæli. Skreytið með kókosflögum og berjum.
Njótið!