Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þegar Jesús mettaði fimm þúsund

$
0
0

Ég er búin að vera trúlaus í hátt í hálfa öld en lærði nú samt mínar biblíusögur og svo las ég Biblíuna spjaldanna á milli áður en ég kastaði trúnni og í umræðu síðustu daga og öllu talinu um að við getum nú ekki tekið við mörgum og hvað ætli þetta kosti allt saman og svoleiðis hefur stundum rifjast upp sagan af því þegar Jesús mettaði fimm þúsund.

Ég fletti henni upp áðan af því að ég ruglast alltaf í því hvort þetta voru nú fimm brauð og tveir fiskar eða öfugt.

Og þá rak ég augun í það, sem ég var búin að gleyma, að í Markúsar-, Lúkasar- og Jóhannesarguðspjalli er tekið fram að þetta hafi verið fimm þúsund karlmenn.

Ég hélt kannski að það hefðu eingöngu verið karlar á staðnum en svo sé ég að í Mattheusarguðspjalli stendur: „fimm þúsund karlmenn, auk kvenna og barna“. Svo að hinir guðspjallamennirnir töldu konur og börn bara ekki með, eða kannski fengu þau körfurnar tólf með afgangsbrauðmolunum.

En hvað sem því líður ætla ég að gerast kristileg snöggvast og minna á að þegar lærisveinarnir sögðu við Jesús um mannfjöldann (fimm þúsund, með eða án kvenna og barna):

„Lát nú fólkið fara, að þeir geti náð til þorpanna og keypt sér vistir,“ þá sagði hann ekki, já, sendið þá í burtu og látið þá redda sér sjálfa, heldur:

„Ekki þurfa þeir að fara, gefið þeim sjálfir að eta.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283