Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Bestu barnafataverslanirnar á netinu!

$
0
0

Það getur verið einstaklega þægilegt að panta barnaföt á netinu. Sérstaklega ef þú þekkir merkin og stærðirnar. Það er óneitanlega auðveldara að sitja heima með kaffibolla og skoða úrvalið í stað þess að þræða verslanamiðstöðvar með barnaskarann á eftir sér og taugakerfið í molum!

Margar erlendar verslanir eru nú farnar að bjóða upp á að senda til Íslands. Það er yfirleitt ekki ódýrara að versla á slíkum síðum nema um útsölur eða tilboð sé að ræða en flestar síður eru með sér afsláttarflokk. Ekki má gleyma að sendingargjald bætist við á lokastigum pönntunarinnar og tollur við komu varnings til Íslands. Reikna má áætlaðan toll hér.

Ef þið lumið á ábendingum um skemmtilegar vefverslanir þá megi þið gjarnan kommenta hér að neðan.

BabyShop er ein vinsælasta og stærsta barnavefverslun á norðurlöndunum en hún er í eigu sænskra hjóna. Síðan býður upp á mikið úrval af hágæða merkjavöru svo sem MOLO, Armani Junior, Ralph Lauren og hið gullfallega íslenska merki As we grow og Ígló og Índí. Ekki að við förum að sækja vatnið yfir lækinn og panta íslenskan fatnað frá útlöndum þá er engu að síður gaman að sjá íslensk merki við á sömu síðu og frægustu hönnuði heims!

babyshop

Ef þú skráir þig á póstlista færðu sendan afsláttarkóða og upplýsingar um nýjar vörur og útsölur. Á babyshop.com má oft gera mjög góð kaup á hinum vinsælu merkjum MOLO og Mini Rodini í útsöluflokknum en síðan er með mjög mikið úrval frá þessum merkjum. BabyShop selur einnig kerrupoka, vagna, meðgöngufatnað, leikföng, innanstokksmuni og fleira. Sendingarkostnaðurinn er 4 evrur fyrir fatnað. www.babyshop.com

littlesunflowers

Little Sunflowers er lítil og persónuleg vefverslun í eigu breskra hjóna. Hjónin, Bev og Andy skrifa sjálf undir alla tölvupósta og bjóða einnig upp á fría innpökkun á öllum vörum sem þau selja. Þar sem verslunin er staðsett í Bretlandi eru öll verð í pundum sem gera fatnaðinn dýrari en tildæmis hjá Babyshop sem er í evrum. Útsölurnar og tilboðskóðarnir eru yfirleitt mjög góðir og eru vörurnar þá töluvert ódýrari en hér á landi ef þær eru þá fáanlegar. Stöðluð sending hjá Little Sunflowers kostar 4.94 pund. Þegar þú skráir þig færðu sendan 15% afsláttarkóða og í hvert skipti sem þú pantar safnar þú stigum. Þegar 6 stigum hefur verið safnað færðu sent 20 punda gjafabréf. www.littlesunflowers.com

Pomp de luxe

Pompdelux

Pompdelux er dönsk vefverslun sem býður upp á eigin hönnun. Allt frá góðu úrvali útivistarfatnaðs til kjóla og fylgihluta. Litapalletta merkisins er pastellituð og mjög falleg. Gráir, brúnir, fjólubláir og fölbleikir tónar eru í forgrunni. Mjög fallegur og vandaður fatnaður. Það kostar 15 evrur að senda til Íslands. www.pompdelux.com

MACY‘S er ein stærsta verslunarkeðja Bandaríkjanna og rekur yfir 800 verslanir. Macy‘s sérhæfir sig í merkjavöru og framleiða mörg þekkt tískuhús sér línur fyrir verslunina. Macy‘s selur meðal annars Carters barnaföt sem hafa verið mjög vinsæl og eru á góðu verði. Númerin í Carters eru lítil og því er gott að kaupa allavega einni til tveimur stærðum stærra en barnið notar.  Verslunin sendir til Íslands. Sendingarkostnaður er yfirleitt að lágmarki um 5000 kr plús skatt. Því getur borgað sig fyrir nokkrar vinkonur sem dæmi að panta saman ef þig vantar ekki margar flíkur. Ef þú ert að fara til Bandaríkjanna senda þeir fyrir lítið á hótelið þitt. Verslunin er yfirleitt með góð tilboð og útsölur. Afsláttakóðar eru einnig mjög algengir og eru yfirleitt gefnir upp á forsíðusíðunni eða á sérstökum afsláttakóðasíðum á borð við retailmenot.com. Sökum kóðanna er oft mun ódýrara að versla á netinu en í versluninni sjálfri. www.macys.com

mam snuð

MAM er þekktur snuðframleiðandi sem býður meðal annars upp á að sérmerkja snuð á heimasíðu sinni. Snuð eru nefnilega ansi oft fljót að tína tölunni og ruglast auðveldlega hjá dagmömmunni. Því eru sérmerkt snuð mjög sniðug og kosta um það bil 1000 kr stykkið hingað komin með öllum gjöldum. Snuðin eru seld nokkur saman og því sniðugt að panta fyrir fleira en eitt barn og deila þannig kostnaðnum. Auk snuða eru á síðunni seldir tannburstar, matarílát og gjafasett. Ef þú skráir þig á póstlistann færðu sendan afsláttakóða sem veitir 20% afslátt af fyrstu pöntun. www.mambaby.com

Tom Leighton A.K.A. Photosbytomtom is a commericial photographer who specialises in fun, colourful, and children's fashion photography with images that help his clients sell their great apparel.

Aðrar síður sem íslenskar mæður mæla með:

www.childrensplace.com

http://www.carters.com/

http://en.smallable.com/

http://www.orangemayonnaise.com/

http://www.kids-world.dk/

http://www.alexandalexa.com/

Ef þið lumið á ábendingum um skemmtilegar vefverslanir þá megi þið gjarnan kommenta hér að neðan.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283