Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Icelandair vill enga fædda fyrir 1980

$
0
0

Það virðist vera að konur á besta aldri eða 35 ára og eldri þyki ekki gjaldgengar í störf flugfreyja hjá Icelandair. Kvennablaðið hefur fengið staðfest úr ýmsum áttum að konur jafnvel með reynslu í ferðageiranum og flugi hjá öðrum flugfélögum og að auki gagnleg háskólapróf upp á vasann þykja ekki gjaldgengar í þjónustustörf fyrir flugfélagið vegna aldurstakmarkanna sem flugfélagið setur. Ekki er hægt að gera sér í hugarlund hverju þessar aldurstakmarkanir sæta? En þetta er skemmtilegt innlegg í jafnréttisbaráttu vorra daga.

Icelandair ræður ekki flugliða sem fæddir eru fyrir 1980

Halda Icelandair að farþegum standi ógn af konum fæddum fyrir 1980? Halda Icelandair að konur fæddar fyrir 1980 veki ugg hjá farþegum? Eru konur fæddar fyrir 1980 ekki traustsins verðar þrátt fyrir að vera oft og tíðum búnar að koma upp börnum, koma sér fyrir og ljúka langskólanámi? Eða er staðreyndin sú að markaðs- og starfsmannastjórum Icelandair finnst konur fæddar fyrir 1980 bara svo skelfilegar á að líta? Er þá ekki tímabært að banna konum eldri en 35 ára að ferðast með flugfélaginu?

Svarið sem umsækjendum barst sem ekki þóttu vera á réttum aldri er eftirfarandi:

Kæri umsækjandi.
Vísað er til umsóknar þinnar um starf flugfreyju / flugþjóns hjá Icelandair.
Fjallað hefur verið um umsókn þína og liggur fyrir að hún uppfyllir ekki þann aldursramma sem getið var um í auglýsingunni og ert þar af leiðandi ekki í hópi þeirra sem gefst kostur á ráðningu í ofangreint starf.
Við þökkum kærlega fyrir áhugann sem þú sýndir með umsókn þinni.
Icelandair færir þér bestu kveðjur og óskar þér allra heilla um ókomna tíð.
Starfsmannasvið Icelandair

Screen Shot 2015-09-10 at 13.46.28

Í auglýsingunni stóð að umsækjendur ættu að vera fæddir 1980 eða síðar.

Það er sérkennilegt að konur á besta aldri þyki óhæfar til að sinna því þjónustuhlutverki sem flugliðastarfið er og eðlilegt að spyrja hverskonar ímyndarpæling þetta er hjá fyrirtækinu að ráða bara kornungt fólk til starfa og útiloka með því stóran hóp hæfra umsækjenda.

Gaman væri að heyra rök starfsmannastjóra Icelandair og bjóðum við honum/henni að skrifa okkur hér kvennabladid@kvennabladid.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283