Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við innkaupadeild að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir.
„Árið 2013 voru fluttar inn vörur frá Ísrael fyrir tæpar 720 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Eingöngu á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 var flutt inn fyrir rúmar 377 milljónir króna.“
Fólk víða um heim sniðgengur vörur frá Ísrael í mótmælaskyni eins og t.d. Mediijol döðlur, Jaffa appelsínur, Nestlé súkkulaði, Coca-Cola og vörur frá Black og Decker svo eitthvað sé nefnt. Skoðaðu landsnúmerið á strikamerkinu á þeim vörum sem þú kaupir til daglegra nota. Landsnúmer Ísraels er 7 29.