Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hneykslismál í Bretlandi: David Cameron og grísaveislan

$
0
0

Í nýrri bók sem kemur út í vikunni um ævi David Cameron er því haldið fram að hann hafi stungið lim sínum inn í dautt svín á meðan hann var nemi í Oxford. Bókin sem ber tititlinn “Call Me Dave” – heldur því fram að Cameron hafi framkvæmt þennan gjörning í elítubræðralagi innan háskólans er kallast The Piers Gaveston drinking society.

Screen Shot 2015-09-21 at 21.32.02

Íhaldsmaðurinn Lord Ashcroft og Isabel Oakeshott fyrrum stjórnmálaritstjóri The Sunday Times sem eru höfundar bókarinnar segja að heimildamaður þeirra sé núverandi þingmaður sem hafi verið í Oxford á sama tíma og Cameron og sá hafi fullyrt þetta við ýmis tækifæri á undanförnu ári.

Það er auðvitað búið að gera myndband um vesalings Cameron en sumir ganga svo langt að segja að hann verði að segja af sér vegna ásakananna. Umræðan á Twitter er undir myllumerkinu #Piggate

Hér er myndbandið:

Nýverið skrifuðu Bretar undir samning við Kínverja um að selja þeim svínasæði að andvirði 45 milljóna punda og hafa gárungarnir eðlilega fundið leiðir til að slá þessum óheppilegu ávirðingum á hendur forætisráðherranum saman við sölu svínasæðisins. Í tilkynningu frá Downing street vegna samningsins sagði meðal annars:

„Bestu svín Bretlands munu tryggja fæðuöryggi þessarar fjölmennustu þjóðar veraldar.

Ef dæma má þetta tvít verður skopmynd The Independent eftirminnileg:

Dýraverndunarsinnar, grænmetisætur og pólitískir andstæðingar Cameron hafa nýtt tækifærið til hins ýtrasta enda er Corbyn grænmetisæta til margra ára og meint athæfi Cameron frámunalega andstyggilegt ef satt reynist.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283