Kostuð kynning
Icepharma kynnir Kerecis, íslensk húðkrem með omega-3 fitusýrum. Þessi krem flokkast ekki sem snyrtivörur heldur lækningavörur enda ætluð fólki með veruleg húðvandamál. Dr. Baldur Tumi Baldursson húðsjúkdómalæknir vann að þróun kremanna. Fjórar tegundir krema eru komnar á markað, Xma, Smooth, Psoria og Footguard. Öll innihalda kremin Omega3 en mismunandi magn af ávaxtasýru og karbamíði. „Exemkremið er hvorki með sýru né karbamíði, Psoria er fyrir hreistraða húð og með minnst af sýru og karbamíði. Footguard er með meiri sýru og karbamíð en mest af ávaxtasýrum og karbamíði er í Smooth, sem er gert fyrir innvaxin hár og húðnabba.“
Hér er Dr. Baldur spurður spjörunum úr en þessi krem njóta nú mikilla vinsælda hjá fólki sem glímir við húðvandamál.
Segðu okkur frá Kerecis kremunum. Hvernig eru þau til komin?
Við stofnuðum Kerecis árið 2009 til að þróa notkun á fiskiroði til að meðhöndla sár og vefjaskaða. Við tókum fljótlega eftir því að húðin umhverfis sárin varð heilbrigðari og fórum að velta því fyrir okkur hvernig stæði á því. Niðurstaðan er sú að Omega3 olían í roðinu virðist hafa afskaplega heilnæm áhrif á húð.
Er þá roð í Kerecis kremunum?
Nei, við notum ekki roðið beint heldur vinnum sérstaka olíu úr hráefninu sem við köllum mOmega3. mOmega3 inniheldur mikið af EPA og DHA fitusýrum sem tengjast heilbrigði húðarinnar. Þetta er afskaplega spennandi tækni sem við hlutum einkaleyfavernd fyrir.
Hvaða jákvæðu áhrif hafa kremin á húðina?
Húðin á okkur er byggð upp eins og múrsteinar með múrlím á milli. Múrsteinarnir eru frumurnar og múrlímið er hið svokallað millifrumuefni. Millifrumuefnið er ríkt af fitum og öðrum efnum. Við erum með nokkrar tegundir af kremum sem meðhöndla húðina og millifrumuefnið á mismunandi máta.
Hvaða tilgang hefur ávaxtasýran í kremunum?
Efsta lagið í húðinni okkar samanstendur af dauðum húðfrumum og millifrumuefnum. Ávaxtasýran opnar þetta dauða efsta lag og losar uppí því. Þetta gerir mOmega3 efnunum kleift að komast neðar í húðina og meðhöndla millifrumulagið sem ég nefndi áðan.
Hver er reynslan af kremunum?
Reynslan af kremunum er afskaplega góð. Ég starfa sem húðlæknir og sé mikið af erfiðum húðvandamálum daglega. Sum vandamálin þarfnast strax meðhöndlunar eða lyfja en sum vandamál er auðvelt að meðhöndla með Kerecis kremunum. Það er auðvitað alltaf betra að nota náttúrulega meðhöndlun frekar en lyf þegar kostur er.
Kremin eru CE merkt. Hvaða þýðir það?
CE merkingin þýðir að kremin eru lækningavara en ekki snyrtivara. Reglugerðarumhverfið fyrir lækningavörur er miklu flóknara en fyrir snyrtivörur og alls konar prófanir þarf að framkvæma áður en hægt er að CE merkja. Með CE merkingunni getum við sagt að Kerecis kremin „meðhöndli“ ýmsa húðsjúkdóma og einkenni þeirra. S.s. exem, psoriasis, húðnabba og þrálátt fótasigg.
Skoðum kremin aðeins nánar hér:
Kerecis Footguard kremið er fyrir ofurþurra fætur, oft með sprunginni húð. Kremið inniheldur sýru sem mýkir sigg og efstu lög húðarinnar þannig að Omega3 fitusýrurnar eiga greiða leið inn í húðina til að styrkja og næra millifrumuefni hyrnislagsins.
Kerecis Psoria kremið er fyrir húð með einkenni psoríasis eða annarskonar hreistursmyndun. Kremið inniheldur sýru sem losar hreistrið af og eykur gegndræpni húðarinnar þannig að Omega3 fitusýrurnar eiga greiða leið inn í hana. Omega3 fitusýrurnar afspenna húðina og draga úr kláða ásamt því að auka vatnsbindigetu húðarinnar. Kerecis Xma er fyrir þunna og bólgna húð með einkenni exems. Í þunnri og bólginni húð hefur náttúrulegt millifrumuefni húðarinnar gefið eftir þannig að húðin er gegndræp og móttækileg fyrir Omega3 fitusýrunum sem hjálpa til við að minnka gegndræpnina og endurskapa rakabindigetu húðarinnar.
Kerecis Smooth er fyrir húð með rakstursbólur og húðnabba (keratosis pilaris). Kremið inniheldur sýru og örlítið magn af Omega3 sem mýkir efsta lag húðarinnar þannig að hár vaxa auðveldar í gegnum hana og raksturstbólur myndast síður.