Fyrir meira en ári síðan sat ég með mömmu minni að spjalla við hana og meðal annars var verið að ræða sykurlausar uppskriftir. Einhverstaðar í umræðunni spurði mamma mig hvort ekki væri hægt að gera sykurlausa sykurpúða. Fyrst var ég alveg ehh… nei mamma, en svo fór hausinn af stað og þessi uppskrift varð til.
Sykurlausir sykurpúðar
3 eggjahvítur úr stórum eggjum
4 matarlímsblöð
3msk vatn
1tsk vínsteinslyftiduft
90g Sukrin Melis
15 dropar vanillu stevía
saltklípa
fræ úr 1 vanillustöng
Stífþeytið eggjahvítur. Bætið smátt og smátt við vínsteinslyftiduft, sukrin melis og salt.
Fræhreinsið vanillustöng og bætið út í ásamt stevíu.
Setjið 3 msk af vatni í pott og kreistið matarlímsblöðin svo aukavatn fari úr þeim og setjið í pottinn og hitið þar til þau leysast upp.
Bætið matarlíminu varlega út í eggjahvíturnar og þeytið á meðan á miðlungshraða. Þeytið svo á hæsta hraða í umþaðbil þrjár mínútur.
Geymið í lokuðu íláti í kæli.