Brynhildur S. Björnsdóttir, varaþingmaður og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til félags- og húsnæðismálaráðherra um rétt foreldra til stuðnings vegna missis barns. Brynhildur vill vita hvaða rétt foreldrar hafa til stuðnings vegna andláts barns. Þar á meðal veikindarétt, endurhæfingu og faglegs stuðnings við áfallið.
Einnig spyr hún hvaða áhrif það hefur á rétt foreldris ef það hefur verið lengi utan vinnumarkaðar vegna umönnunar langveiks barns.
Enga opinbera reglugerð er að finna á Íslandi í dag, sem skilgreinir réttindi foreldra við andlát barns og telur Brynhildur brýnt að bæta strax úr því.
Það þurfi að tryggja að foreldrar sem missi börn sín eigi rétt á faglegri aðstoð og lögbundnu fríi til að geta sótt viðeigandi endurhæfingu eftir slíkt áfall. Ekki síst fyrir þá foreldra sem hafa ekki getað sótt vinnumarkað í lengri tíma vegna umönnunar langveikra barna.