„Undanfarin vika hefur verið mjög strembin hjá ykkur. Þið tókuð stórt skref með því að ákveða að sniðganga ísraelskar vörur en með því sýnið þið Palestínumönnum gríðarlegan stuðning. Ákall um slíka sniðgöngu kom fyrst fram þann 9. júlí árið 2005, ári eftir að Alþjóðlegi glæpadómstóllinn ályktaði að bygging Ísraela á aðskilnaðarmúri á landi Palestínumanna væri ólögleg.
Ákallið kom frá fjölmörgum hreyfingum í Palestínu þar sem skorað var á félaga þeirra og einstaklinga um allan heim að hefja víðtæka sniðgöngu á Ísrael. Fyrirmynd ákallsins voru þær aðferðir sem beitt var gegn Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Ákallið felur í sér að sniðganga ísraelska framleiðslu, hvatningu um að hætta fjárfestingum og kröfu um viðskiptaþvinganir gegn Ísrael, þar til að réttindi Palestínumanna verða virt að fullu í samræmi við alþjóðalög.
Ísrael hefur brotið fleiri samþykktir Sameinuðu þjóðanna heldur en nokkuð annað land í heiminum (fleiri en Íran og Írak til samans) en neitunarvald Bandaríkjanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hefur verndað Ísrael ítrekað gegn öllum tilraunum til að neyða Ísrael að fara eftir samþykktunum.
Fjöldi fyrirtækja og einstaklinga hafa brugðist við þessu ákalli og margir sigrar hafa unnist. Til að mynda var hægt að þrýsta á að SodaStream fyrirtækið myndi loka verksmiðju sinni á landi Palestínu en þar var hún í óþökk Palestínumanna og stal bæði landi og vatni. Veoilia er franskt fyrirtæki sem fjárfesti mikið í Ísrael, meðal annars með því að byggja upp lestarsamgöngu í Austur-Jerúsalem á herteknu landi, hefur hætt öllum sínum viðskiptum við Ísrael vegna kröfu um að fyrirtæki og einstaklinga hætti að versla við Ísrael þar til þeir fara að alþjóðalögum.
Tilgangur hreyfingarinnar er að þrýsta á fyrirtæki og stofnanir og hvetja einstaklinga til að sniðganga ísraelska framleiðslu og fyrirtæki og samstarf við ísraelskar stofnanir og samtök á sviði íþrótta, menningar- og menntamála. Með sniðgöngu og viðskiptaþvingunum sem hafa neikvæð fjárhagsleg áhrif á ísraelsk stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir, skapast þrýstingur á Ísrael frá alþjóðasamfélaginu. Með því sendum við þau skilaboð að við verslum ekki og eigum ekki í diplómatískum samskiptum við Ísrael vegna ítrekaðra mannréttindabrota þeirra gegn Palestínumönnum. Okkar er valið og við veljum að taka ekki þátt í að fjármagna áframhaldandi aðskilnaðarstefnu og hernám Ísraela í Palestínu.
Markmiðum hreyfingarinnar telst náð þegar:
a) – hernámið og nýlendustefna á öllu arabísku landi, sem hernumið var í júní 1967, hefur verið stöðva og aðskilnaðarmúrinn fjarlægður;
b) – þegar grundvallarréttindi þeirra borgara í Ísrael, sem teljast sem Palestínu-arabar, hafa verið viðurkennd og þeim veitt full réttindi á við aðra borgara; og
c) – réttindi palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til sinna heimkynna og til sinna eigna, eins og samþykkt Sameinuðu þjóðanna nr. 194 gerir ráð fyrir, hafa verið virt.
Oft eru sett fram þau rök að sniðganga sé and-semitísk en það er alls ekki rétt. Að stuðla að aðskilnaði, standa á bak við hernám, þjóðernishreinsun, byggingu ólöglegra landnemabyggða og að víkka út eigið landsvæði er ekki byggt á gyðingdóm heldur frekar pólitískri hugsjón síonisma og hugmyndinni um “Stór-Ísrael” (Eretz Israel). Þessar hugmyndir hafa ekki rétt á sér samkvæmt alþjóðalögum, stjórnmálasögu eða í flestum afbrigðum gyðingdóms eða menningu gyðinga. Síonismi er pólitísk hreyfing sem er alls ekki studd af öllum gyðingum í heiminum. Raunverulegur and-semitismi er sú tilraun að tileinka öllum gyðingum hugmyndafræði sem margir þeirra telja alls ekki í anda þeirra félagshyggju og samhygðar sem Gyðingdómur boðar.
Að lokum viljum við þakka borgarfulltrúm Reykjavíkur fyrir það hugrekki sem þið hafið sýnt. Því miður er það þannig að sterkari öfl hafa áhrif á okkur og það er sorglegt að horfa uppá öfluga sionista ná að setja það mikinn þrýsting á ykkur að þið neyðist til að gefa ykkur. Sionistar og Ísrael munu alltaf beita sér hart gegn allri sniðgöngu, ásaka ykkur um gyðingahatur og reyna að koma í veg fyrir alla umræðu en við hvetjum ykkur til að vera sterk og halda áfram baráttu fyrir friði og mannréttindum.
Baráttunni er ekki lokið og við hjá BDS Ísland viljum sjá ályktun um að sniðganga allar vöru frá hernumdusvæðunum sem fyrst og helst á morgun!“
Með þökk og vinsemd,
Arna Ösp Magnúsardóttir
Steinunn Rögnvaldsdóttir
Linda Ósk Árnadóttir
Qussay M. Odeh
Yousef Ingi Tamimi
Sema Erla Serdar
Oddur Sigurjónsson
Elsa Dóróthea Daníelsdóttir