Jónas Sigurðsson tónlistarmaður, oft kenndur við Ritvélar framtíðarinnar og Héðinn Unnsteinsson höfundur bókarinnar “Vertu Úlfur” flytja þessa dagana dagskrá sem þeir kalla “Hamingjan og Úlfurinn”. Þeir verða í Salnum Kópavogi í kvöld kl. 20:00
Dagskráin er að hluta til tónlist og að hluta til töluð orð. Viðfangsefnið er lífið sjálft. “Hvað er hamingjan? Hvað skiptir máli í því stutta ferðalagi sem lífið er? Héðinn fjallar í uppistandsformi um lífsreynslu sína, oflæti og hamskipti og leggur út af Lífsorðunum 14, einföldum kennisetningum sem hjálpa honum á degi hverjum. Jónas leikur nokkur af lögum sínum og ræðir jafnframt um það hvað liggur að baki þeirra.
Hamingjan og Úlfurinn hefur fengið mikið lof og frábærar viðtökur þar sem þeir hafa komið til þessa. Dagskrá þeirra hefur meðal annars verið lýst sem upplifun sem enginn má missa af; „óviðjafnanlega inspírerandi, kraftmiklu og hrífandi stefnumóti með tveimur einstaklega heillandi og sönnum karlmönnum”. Miðar eru seldir í forsölu á salurinn.is og við innganginn. Húsið opnar kl 19:30.