Þekkiru lagið „Where Did Our Love Go?“ Fjöldi kvenna á fertugs-, fimmtugs- og sextugsaldri spyrja frekar, „Where Did Our Sex Go?“ Skortur á löngun er algeng hjá konum þegar breytingarskeiðið nálgast, á breytingarskeiðinu og eftir. Vandamál tengd skorti á löngun eru algengust á aldrinum 35 – 64 ára.
Ekki er hægt að skella allri skuldinni á hormóna. Ástæður fyrir minnkaðri kynlífslöngun eru flóknar en hér á eftir nefni ég þær helstu.
Breytingar á estrógeni
Áður en þú ferð á breytingaskeiðið þá er kynlöngun þín mest í kringum egglos. En þegar þú ert hætt á blæðingum þá lækkar estrógenmagnið og þessir dagar með hormónauppsveiflum eru fyrir bí.
Konur sem komnar eru á breytingaskeiðið bregðast einnig öðruvísi við snertingu og eiga erfiðara með að ná örvun. Minna estrógen þýðir einnig minna blóðflæði til snípsins og meiri þurrk. Samfarir geta því orðið sársaukafular. Og hver vill kynlíf þegar það er vont?!
Hvað getur hjálpað: Númer eitt er að koma í veg fyrir sársauka. Prófaðu sleipiefni og helst vatnsleysanlegt sleipiefni. Einnig hægt að kaupa ýmis unaðskrem eða fullnægingarkrem sem auka blóðflæði til snípsins svo örvun sé auðveldari.
Hormónameðferð virðist ekki auka löngunina hjá flestum konum, hún slær aðallega á einkenni eins og hitakóf og ýmislegt annað sem veldur vanlíðan og hjálpar þér ekki að láta þér finnast þú vaða í kynþokka.
Streita
Á miðjum aldri eru margar konur á fullu í að byggja upp starfsframa, ala upp unglinga og að reyna gefa af sér til samfélagsins. Öll þessi hlutverk byggja upp streitu og streita getur auðveldlega sett kynlöngun í parkgírinn. Að veigra sér við að stunda kynlíf með maka getur skapað spennu á milli þín og makans. Minni kynlífslöngun er algengari í samböndum sem hafa staðið lengi. Allt gerist þetta á svipuðum tíma og því er skuldinni oft skellt á breytingaskeiðið en í raun er þetta ótal litlum orsökum um að kenna.
Hvað getur hjálpað: Ekki einblína á samfarir. Eyddu meiri tíma í forleik og prófaðu annars konar kynlífsathafnir eins og nudd og munnmök. Prófaðu að leika þér meira í svefnherberginu án þess að það endi endilega með samförum.
Breytingar á andrógeni
Bæði kynin hafa tilhneigingu til að finna fyrir minnkaðri kynlífslöngun með aldrinum. Konur hafa þó þrisvar sinnum meiri tilhneigingu til að upplifa skerta löngun. Að hluta til er hægt að kenna andrógenhormóni um, karlhormóni sem er einnig að finna í konum.
Hvað getur hjálpað: Ræddu við lækni um hvort hormónameðferð gæti hjálpað þér. Mundu að hollt og gott matarræði, reglulegur svefn og hreyfing bæta kynlöngunina.
En það eru góðar fréttir líka af kynlífinu og því að eldast. Tíminn. Hann vinnur með okkur. Margar konur segjast finna fyrir aukinni löngun eftir breytingaskeiðið. Hvort þú verðir svo heppin, leiðir tíminn í ljós. Að lokum er ráðlegging mín til þín. Gerðu það sem oftast því þá virkjar þú löngunina og kveikir glæður.