Fréttatilkynning:
„Frelsi og jafnrétti — forsenda framfara“ voru kjörorð 42. landsfundar Sjálfstæðisflokksins og stjórnmálaályktun fundarins endurspeglaði þau dyggilega. Ítrekað var að frelsi einstaklingsins væri grunnurinn að sanngjörnu og umburðarlyndu samfélagi, þar sem virðing væri borin fyrir ólíkum lífsháttum.
Um leið var varað við því að menn tækju frelsinu eða þeim lífsháttum, sem Íslendingar eiga að venjast, sem gefnum. Þannig hefði á undanförnum árum verið reynt að gera frelsið tortryggilegt og bendla það við græðgi og yfirgang. Samhliða þætti frelsi til athafna, skoðana og tjáningar svo sjálfsagt að eftir því væri varla tekið, en þá þyrfti að varast að á það yrði gengið hægt og hljóðlega.
Þá var vikið að jafnrétti, en frelsi einstaklingsins væri grundvöllur þess og jafnrétti allra einstaklinga er grunngildi í sjálfstæðisstefnunni í Sjálfstæðisflokksins. Með því að stuðla að jafnrétti kynjanna væri enda lagður grunnur að velferð einstaklingsins, fjölskyldunnar og atvinnulífsins og þar með samfélagsins alls.
Landsfundurinn var helgaður konum í tilefni þess að 100 ár eru liðin síðan konur öðluðust almennan kosningarétt. Af þeim sökum var sérstök áhersla lögð á jafnrétti kynjanna í stjórnmálaályktun fundarins og raunar ýmsum ályktunum öðrum. Það eru þó ekki einu jafnréttismálin, því einnig var ályktað um jafnréttismál hinsegin fólks og áréttað að Sjálfstæðisflokkurinn yrði áfram leiðandi í þeim efnum. Þá var minnt á að fólk ætti að njóta jafnréttis óháð trúarskoðunum, að gera þyrfti ráðstafanir svo fatlaðir nytu jafnréttis í hvívetna og að enginn ætti að þurfa að þola ójafnrétti eða minni rétt fyrir aldurs sakir.
Mannréttindi
Landsfundurinn ályktaði um mannréttindamál í víðu samhengi og þröngu. Þannig var lýst yfir stuðningi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að veita auknu fé til flóttamannaaðstoðar. Iítrekað var að Ísland ætti að taka vel á móti innflytjendum og að mannúðarsjónarmið þyrfti að hafa að leiðarljósi í málefnum hælisleitenda.
Minnt var á að mannréttindabaráttan ætti sér marga fleti. Þannig væru greið milliríkjaviðskipti og aukin réttindi kvenna forsendur jákvæðrar efnahagsþróunar og bættra kjara íbúa fátækustu ríkja heims. Sjálfstæðisflokkurinn telur að víkja eigi viðskiptahindrunum á heimsvísu úr vegi.
Þá var í samhengi mannréttinda vikið að fíkiefnavandanum og sú stefnubreyting kynnt að líta þyrfti á fíkn sem heilbrigðisvanda en ekki löggæsluvanda. Jafnframt þyrfti að skapa fleiri úrræði fyrir fíkla með skaðaminnkun að leiðarljósi.
Efnahagsmál
Landsfundur staðfesti meginafstöðu Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum. Dregið var fram að öflugt og fjölbreytt atvinnulíf væri forsenda góðra lífskjara í landinu, en einnig að verkaskiptingin í þjóðfélaginu þyrfti að vera skýr. Mikilvægt væri að ríkisvaldið einbeitti sér að rekstri grunnstoða samfélagsins, sem almenn sátt væri um, en eftirléti einkageiranum allan almennan atvinnurekstur og takmarkaði ekki athafnafrelsi einstaklinga nema brýn ástæða væri til.
Í ályktuninni var undirstrikað að ríkisstjórnin þyrfti að vinda ofan af skattahækkunum fyrri ríkisstjórnar, en minnt á að meira þyrfti til. Þannig yrði að einfalda til muna bæði opinbert regluverk og skattkerfið svo deilihagkerfið mætti þrífast og eflast við hlið hefðbundins atvinnulífs á jafnréttisgrunni.
Landsfundur beindi því til ríkisstjórnarinnar, sð selja ætti eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum og tryggja dreifteignarhald þeirra, en jafnframt væri afar mikilvægt að söluferli á hlutum ríkisins í viðskiptabönkum yrði galopið og gagnsætt. Þá var ályktað að Sjálfstæðisflokkurinn legði áherslu á ábyrga stjórn opinberra fjármála og lækkun ríkisskulda, en ekki síður væri þó mikilvægt að afnámi fjármagnshafta lyki sem fyrst.
Formaður stjórnmálanefndarinnar var Elsa Valsdóttir.
Meðfylgjandi er stjórnmálaályktunin eins og hún var samþykkt á landsfundinum.