Þegar mig langar að gera mér glaðan dag og elda kvöldmat í óhollari kantinum verður pasta oftar en ekki fyrir valinu. Ég er og hef alltaf verið mikill aðdáandi rjómapastarétta og finnst þeir mjög hentugir við ýmis tilefni, hvort sem ég á von á gestum í mat, er á leið í Pálínuboð eða bara þegar ég er í stuði fyrir rjómapasta og hvítlauksbrauð.
Ég get eiginlega lofað ykkur því að hægt er að bjóða uppá þennan rétt án þess að gestirnir taki eftir því að notaður sé soya-rjómi og ég get líka lofað ykkur því að þessi pastaréttur er léttari í magann þrátt fyrir að gefa ekkert eftir hvað bragðið varðar.
Nýlega hóf Nettó sölu á soya matreiðslurjóma frá Naturli. Rjóminn er í miklu uppáhaldi hjá mér og hentar prýðilega í sósur og súpur. Fyrir þá sem illa þola soya bjóða Nettó búðirnar einnig upp á möndlu-, rís- og kókosrjóma.
Einnig fæst æðislegur hafrarjómi frá Oatly í versluninni Góð heilsa. Ég mæli eindregið með því að prófa þessa mjólkurlausu matreiðslurjóma því þeir eru einstaklega góðir og ef þú ert vegan, með mjólkuróþol, að reyna að minnka mjólkurneyslu eða átt von á gesti í mat sem neytir ekki mjólkurafurða er ekkert mál að nota svona rjóma í súpur eða sósur og allir verða glaðir.
Innihald:
1 Askja sveppir
1/2 Rauð paprika
1/2 Græn paprika
1 Lítill haus brokkólí
1 Hvítlauksgeiri
1 Grænmetisteningur
Örlítið af ferskum chili – ekkert mál að nota chili flögur í staðinn.
1 Ferna matreiðslurjómi – hvort sem það er Naturli, Oatly eða möndlurjóminn.
2 Msk næringarger fra Engevita – fæst í Bónus og Hagkaup.
300 g pasta
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
1. Ég byrjaði á því að sjóða pastað eftir leiðbeiningunum á pakkanum
2. Á meðan mýkti ég grænmetið, hvítlaukinn og chili piparinn örlítið á pönnu með ólífuolíu
3. Þegar pastað var soðið lagði ég það til hliðar – það er allt í lagi þó það kólni því við hellum því á pönnuna þegar sósan er tilbúin.
4. Þegar grænmetið hafði mýkst aðeins helti ég rjómanum útí ásamt grænmetisteningnum og næringargerinu. Ég hrærði vel í sósunni og þykkti hana aðeins með maísmjöli – hægt að þykkja með hveiti eða kartöflumjöli líka.
5. Þegar sósan var orðin eins og ég vildi hafa hana bætti ég pastanu út í og saltaði og pipraði eftir smekk. Ég bæti oft meira af næringargerinu út í seinna líka en þið finnið það hjá ykkur ef eitthvað vantar uppá.
Mér finnst æðislegt að bera pastaréttinn fram með hvítlauksbrauði og góðu hvítvíni. Vonandi njótiði!