AÐ DÆMA MANN
Að dæma mann er afar erfið glíma
því ábyrgð sálar heldur þar um taum
er öllum hliðum þarf að gefa gaum
og getur spannað bæði rúm og tíma.
Hver glíma mætir sínum dauðadómi,
hver dagur sínu myrkri heilsar senn
þótt refsingu með tregðu taki menn
sem traðkað hafa mest á lífsins blómi.
Þótt yfir mönnum hangi ljótir listar
af löstum þeim sem varða ólík stig
mun enginn maður dæma sjálfan sig
af sælli hvöt til langrar fangavistar.