Kostuð kynning
Flest erum við með aukna umhverfisvitund og hugum að samfélagslegri ábyrgð og því er svo skemmtilegt þegar fyrirtæki gera það líka, eins og INDISKA sem var opnuð í Kringlunni vorið 2013 íslenskum aðdáendum verslunarinnar til mikillar ánægju. INDISKA er sænsk verslunarkeðja sem rekur yfir 100 verslanir á Norðurlöndum og í Þýskalandi og er íslenskum ferðalöngum að góðu kunn. Indiska býður upp á einstaka blöndu af tískufatnaði, húsbúnaði og margvíslegum fylgihlutum.
Hjá INDISKA finnurðu alltaf eitthvað sem setur punktinn yfir yfir i-ið, hvort sem það er fylgihlutur til að hafa með fatnaðinum eða skrautið til að gera veisluborðið enn fallegra. Það er líka frábært að geta fundið sérstakar flíkur, toppa og kjóla í litum sem poppa upp gallabuxurnar eða smellpassa við gróf stígvél. Oft er líka hægt að gera góð kaup í geggjuðu skarti og litríkum sokkabuxum.
Vörur INDISKA eru skandinavísk hönnun sem er innblásin af indversku handverki með sínum óteljandi litum og mynstrum þar sem rækt er lögð við sérhvert smáatriði. Samfélagsleg ábyrgð og umhverfisvernd eru hjartans mál fyrir INDISKA. Fyrirtækið er stolt af því að hafa allt frá því á 7. áratugnum haft að markmiði að vörur fyrirtækisins séu framleiddar án þess að umhverfið beri skaða af og að starfsemin leiði til góðs í hlutaðeigandi samfélögum. Fyrir meðvitaða kaupandann eru þessu sjónarmið mikilvæg enda samfélagsábyrgð og umhverfisvernd flestum ofarlega í huga þessa dagana.
INDISKA starfar í samræmi við sérstakar siðareglur sem allir 130 birgjar fyrirtækisins í Asíu og Evrópu verða einnig að undirgangast. Siðareglurnar byggja á samþykktum Alþjóðavinnu-málastofnunarinnar (ILO) og sáttmála SÞ um réttindi barna og kveða meðal annars á um heilbrigt starfsumhverfi, bann við barnaþrælkun og ýmis réttindi starfsfólks.
Umhverfisstefna INDISKA lýtur að því að draga sem allra mest úr umhverfisáhrifum alls staðar í framleiðslukeðju fyrirtækisins og tryggja um leið að vörur Indiska séu lausar við skaðleg aukaefni. INDISKA hefur um langt árabil stutt við samfélagsverkefni á Indlandi, í góðri samvinnu við birgja og frjáls félagasamtök.
Þannig hefur INDISKA til að mynda veitt fé til menntunar kvenna, stúlkna og barna á Suður-Indlandi.
Dæmi um vörur sem eru í sölu í Indiska og ágóði sölu rennur til góðgerðamála er Peace Trust vörulínan. „Peace trust collection“ INDISKA samanstendur af handgerðum póstkortum sem búnar eru til af hópi kvenna í suður-Indlandi. 10% af hverri sölu renna beint í „Peace trust“ sjóðinn sem m.a. vinnur gegn barnaþrælkun með því að koma börnum í skóla, hreinsun drykkjarvatns og fleiri samfélagslegum verkefnum.

Ótrúlega falleg götumál
Falleg götumál
Bambus götumálin frá Indiska eru ríkulega skreytt með litríkri indverskri hönnun. Þessi endurvinnanlegi efniviður, bambusinn kemur úr víðfeðmum bambusskógum Kína þar sem hann má nýta á löglegan hátt og undir ströngu eftirliti. Bambusinn er harðger planta sem vex einstaklega hratt. Hann þarfnast ekki áburðar eða skordýraeiturs og er því ákjósanlegur efniviður til notkunar í muni sem uppfylla vistvænar kröfur. Götumálin eru frábær gjöf því þau henta vel bæði fyrir heita og kalda drykki og passa í bílinn sem ekki er verra.
Ilmkerti
Indiska býður upp á ilmkertaseríu með fimm mismunandi ilmkertum. Hvert og eitt ilmkerti er hannað með innblæstri frá sérstöku svæði á Indlandi. Efni og ilmur sem er mikilvægt á því svæði er valið af kostgæfni og notað í kertin. Kertin bera svo nafn þess svæðis sem þau koma frá. Kertin eru vönduð, blanda af paraffin og sojavaxi sem gefur fallegan loga og langan brennslutíma. Öll ilmefnin eru náttúruleg, unnin úr jurtum, berjum og blómum. Kertin eru frábær gjafavara á góðu verði og glösin eru svo falleg að þau má nýta löngu eftir að kertið er brunnið upp.