Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hjálp, hundurinn minn er týndur!

„Hann er svo sætur þessi snúður,“ segir Guðfinna og horfir aðdáunaraugum á fallega Tyrael sem er af tegundinni Alaskan Malamute og einstaklega fallegur þriggja ára rakki. Guðfinna Kristinsdóttir er ein af fjölmörgum hundeigendum sem vilja bæta hag bæði hunda og fjölskyldna þeirra og vinnur hún ötullega í þeim málaflokki. Tyrael var örverpi – og síðasti hvolpurinn til að verða valinn úr gotinu.  Nú telur Guðfinna hann einn af fallegustu hundum sinnar tegundar á landinu og elskar hann afar heitt – reyndar eins og flestir þeir sem eiga hunda!

Image may be NSFW.
Clik here to view.
12034409_1548137208810192_2707895279149643769_o

Guðfinna stundar nám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Hún lærði hönnun í Tækniskólanum og sameinar nú áhugamál sín til hagsbóta fyrir hundeigendur. Guðfinna safnar nú á Karolina Fund fyrir nýju appi sem hún hefur lengi gengið með í kollinum:

„Ég er meðstjórnandi í Hundasamfélaginu á Facebook þar sem um 15.000 hundeigendur skiptast á myndum, ráðum og sögum. Ég fæ ótrúlega margar tilkynningar á dag þar sem fólk hefur týnt hundunum sínum. Lendi fólk í því óláni að hundafangari sé kallaður til kostar það um 28.000 krónur að leysa hundinn út! Það þykir mér allt of há upphæð og skil ég varla í hvað þessi peningur fer hjá ríkinu.“

„Ef fólk lendir í því að týna hundinum sínum er einfalt að hafa búið til prófíl um hann í appinu,“ segir Guðfinna. „Þá er ekkert mál að senda tilkynningu í gegnum appið. Allir sem hafa appið í símanum sínum innan ákveðins svæðis fá þá tilkynninguna og geta þá haft augun hjá sér.“ Þegar meðlimir hundasamfélagsins voru orðnir nokkur þúsund talsins fór Guðfinna að veita auglýsingum um týnda hunda athygli. Þeir voru oftast fljótir að komast til síns heima og það fannst henni mjög ánægjulegt að sjá.

„Það var hinsvegar líka dapurlegt að sjá að sumir gátu ekki borgað hundana sína út eða þá að þeir þurftu að biðla til ókunnugra til að hjálpa sér að greiða fyrir að ná þeim út. Ég velti vöngum hvernig hugsanlega væri hægt að minnka kostnað hundeigenda og þannig þróaðist hugmyndin um appið Týri týndi.“

Appið þjónar þó ekki einungis hundeigendum heldur er líka hægt að auglýsa eftir köttum, fuglum eða öðrum gæludýrum.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
12240483_1548137212143525_5922471254751087121_o

App Guðfinnu býður upp á þann möguleika að hægt sé að setja inn karakterupplýsingar um hundinn sinn – hvort hann hræðist ókunnuga eða hvort eigendur hundsins vilji að haft sé beint samband við þá ef hann finnst. Guðfinna sér ýmsa möguleika með appinu og segir hún einfalt að bæta við ýmsum viðbótum með lítilli fyrirhöfn. „Tyrael minn er til dæmis ekki góður þegar hann hittir marga stóra hunda í einu. Ég vil geta búið til hitting þar sem öllum líður vel og eigendur eiga ekki von á einhverju óvæntu. Það er svo ömurlegt ef hundarnir manns lenda í átökum.“

Image may be NSFW.
Clik here to view.
10669049_1548137202143526_4971245589042806158_o

Afslættir hjá dýraverslunum, gönguleiðir og leiksvæði fyrir hunda eru upplýsingar sem Guðfinnu datt í hug að gætu einnig verið í appinu. Hún gæti líka hugsað sér þegar fram líða stundir að færa appið til útlanda – ef vel til tekst.

Guðfinna biðlar til hundeigenda – og þeim sem þykir vænt um ferfætlingana – að leggja sér lið á Karolina Fund. Hún hefur nú þegar safnað tæplega 900 Evrum af 3500. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283