Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mæðginin Dagmar og Ómar gefa út bók um jólasveinana

$
0
0

13 skrýtnir jólasveinar – Nútímaþjóðsögur fyrir börn og fullorðna

Nær Stekkjastaur að gefa góðu börnunum í skóinn? Hann á bara síðasta húsið í Hnífsdal eftir en hann er með svakalega tannpínu og það er tvísýnt hvort það takist. Þá reynir á aðstoðarmanninn hans, hann Starra. Þá var það Pottaskefill sem steig á jólakúlu og slasaði sig svo illa að Ugla litla — betur þekkt sem Úa — þarf að leysa hann af. Hvernig bregst Úa við þegar lítill prakkari í Hafnarfirði vaknar á meðan hún er að lauma kartöflu í skóinn hans?

12255754_10153768975538055_1108271876_o

Barnabókin 13 skrýtnir jólasveinar fjallar um gömlu íslensku jólasveinana og nokkra hjálparkokka, sem hingað til hafa ekki fengið mikla umfjöllun. Hver og ein saga er sjálfstæð og hugmyndin er að foreldrar geti lesið þær fyrir börnin sín, í aðdraganda jólanna. Þannig mætti t.d. lesa söguna um Stekkjastaur og Starra þann 12. desember og sagan um Giljagaur og Krumma kvöldið eftir.

Alls telur bókin 13 fallegar og skemmtilegar sögur um hinar ýmsu hremmingar sem jólasveinarnir og aðstoðarmenn þeirra lenda í en ná með hugkvæmni, dugnaði og smá heppni að sjá til þess að íslensk börn fái þrátt fyrir allt eitthvað í skóinn. Til þess að gera ævintýrin „íslenskari“ aflestrar hefur hverjum aðstoðarmanni verið gefið nafn í höfuðið á íslenskum fuglum, svo sem Lóa, Glókollur, Rjúpa, Krummi og Fálki.

12236626_10153768975448055_1682774568_o

Höfundur bókarinnar er Ómar R. Valdimarsson blaðamaður og lögmaður, sem plataði móður sína, kraftakonuna, hárgreiðslumeistarann og listmálarann Dagmari Agnarsdóttur til þess að myndskreyta bókina með fallegum myndum.

Mæðginin Ómar og Dagmar.

Mæðginin Ómar og Dagmar.

13 skrýtnir jólasveinar er gefin út af bókaforlaginu Unga ástin mín, sem hefur keppst við að gefa út vandaðar, fallegar og þroskandi barnabækur allt frá stofnun útgáfunnar árið 2006.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283