Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fatakort Rauða krossins mæta brýnni þörf

$
0
0

Rauði krossinn hóf í dag afhendingu fatakorta til einstaklinga og fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu til að mæta brýnni fólks sem býr við þrengingar. Kortið virkar sem úttektarheimild í verslunum Rauða krossins með notuð föt á höfuðborgarsvæðinu.

Rauði krossinn hefur hingað til úthlutað notuðum fatnaði í sérstöku rými en með tilkomu fatakorta getur fólk, sem á þarf að halda, sótt um að fá fatakort. Það getur síðan farið í verslanir félagsins á höfuðborgarsvæðinu, keypt sér föt og borgað með fatakorti.

„Með fatakortunum hafa skjólstæðingar Rauða krossins sama vöruúrval í verslunum félagsins á höfuðborgarsvæðinu og allur almenningur,“ segir Þórir Guðmundsson deildarstjóri Rauða krossins í Reykjavík.

Hægt er að sækja um fatakort á vef Rauða krossins, www.raudikrossinn.is, og milli kl. 14 og 16 á þriðjudögum og fimmtudögum í húsi Rauða krossins að Efstaleiti 9.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283