Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Leikskólakennarinn, hárgreiðslumeistarinn, hjúkrunarfræðingurinn, verslunarstarfsmaðurinn og þjónninn

$
0
0

Gunnar Karl Ólafsson skrifar:

Mig langar að tala um svolítið sem er að verða meira áberandi en of fáir láta vita af því hvernig er að vera undir í þessum málaflokki. Ísland er ‘Í LAGI’ eins og Páll Óskar söng í áramótaskaupi eitt sinn.

Ójöfnuður er þessi merkilegi hlutur sem varð kveikjan að þessum vangaveltum mínum. Ójöfnuður í eignaskiptingu er mestur hér á landi af Norðurlöndunum ef miðað er við hlutdeild eignamestu tíu prósenta landsmanna. Þau eiga um 70,7 prósent eigna á Íslandi. Ójöfnuður er vaxandi vandamál á Íslandi.

Við Íslendingar erum mjög stolt, og stundum of stolt. Ég er auðvitað ekki partur af þessum 90%, þessvegna er Ísland ‘Í LAGI.’

„Næsta góðæri er rétt ókomið, ég held bara áfram. Það er ekkert að mér, konan í næsta húsi virðist geta höndlað þetta, þá get ég ekki sýnt það að ég er við það að missa tökin á öllu, það er ALLT í lagi!“

Það sem að mig langar að benda á er það sem fæstir þora að viðurkenna, og það sem margir neita að sjá.

Leikskólakennarinn sem tekur á móti barninu þínu á hverjum degi með brosi. Hann skildi við maka sinn fyrir nokkrum árum og keypti sér íbúð, en hefur ekki geta borgað af húsnæðisláninu í 1 og hálft ár. Það er ALLT í lagi hjá honum.

Hárgreiðslumeistarinn þinn sem þú hefur farið til í 10 ár er alltaf til að hlusta á öll þín vandamál sem og skemmtilegu fjölskylduferðina ykkar á Kanarí síðasta sumar. Hárgreiðslumeistarinn er einstætt foreldri sem neyddist til þess að taka smálán hjá glæpafyrirtækjum til þess að eiga fyrir keppnisferðinni hjá stráknum sínum norður á Akureyri sem allir strákanir eru að fara á, því að hann er ekkert öðruvísi strákur. Það er ALLT í lagi hjá honum.

Hjúkrunarfræðingurinn sem hlær og grætur með ykkur þegar fjölskyldumeðlimur slasast eða veikist. Hjúkrunarfræðingurinn sem gerir allt sem að hann getur gert til þess að hjálpa. Hann flutti aftur heim til mömmu og pabba eftir dýrt nám sem er illa launað. Hann á sér enga von um að safna sér uppí útborgun fyrir íbúð. Það er ALLT í lagi hjá honum.

Verslunarstarfsmaðurinn sem hjálpar þér við að finna það sem þig vantar fyrir kvöldmatinn. Sem á fáa að og leigir kjallaraholu í Árbænum á 90.000kr og á varla ofaní sjálfan sig, kemur með bros í vinnuna alla daga. Það er ALLT í lagi hjá honum.

Þjónninn á uppáhalds veitingastaðnum þínum, þjónninn sem veit hvernig þú vilt hafa steikina, þjónninn sem veit hvernig fjölskyldan þín hefur það. Vinnur öll kvöld ofaná dagvinnu sína til þess að geta borgað fyrir dóttur sína á ballettnámskeið, af því hún á sér þann draum heitastan að verða balletsdansmær. Það er ALLT í lagi hjá honum.

Málið er að ég held að við lifum flest í blekkingu, eða kannski meðvirkni, um að á Íslandi sé ALLT í lagi.

Leikskólakennarinn, hárgreiðslumeistarinn, hjúkrunarfræðingurinn, verslunarstarfsmaðurinn, þjónninn og allir hinir.

Húsnæðisverð og launakjör á Íslandi eru ekki ALLT í lagi.

Ójöfnuðurinn er ekki ALLT í lagi.

Við þurfum að láta í okkur heyra.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283