Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Scintilla: Hönnun sem tekið er eftir

$
0
0

Scintilla.is er vefur sem þú átt eftir að skoða… og hrífast af. Fyrirtækið er ekki gamalt en hefur þegar vakið töluverða athygli jafnt innanlands sem utan. Þau leggja áherslu á fallegt handbragð, látlaus en afar falleg mynstur og faglega þjónustu.

Scintilla púði

Scintilla púði

Scintilla hefur til sölu í vefverslun sinni vönduð handklæði, rúmföt, handtöskur, kerti og fleira. Mörg hótel kjósa rúmföt Scintillu vegna þægindanna og vegna þess hve vönduð þau eru.

Scintilla veski

Scintilla veski

Teymi Scintillu hefur nú opnað nýjan vef og vefverslun á scintilla.is þar sem þau selja sína fallegu hönnun og jafnframt má skoða „stúdíóið“ þeirra sem býður fyrirtækjum að vera í samstarfi við þau, bæði þau sem eru að vinna að hönnun og arkitektúr. Heita þau því að geta hannað og framleitt vörur sem ekki eru úr efnum, heldur einnig sandblásnum speglum og plakötum. Fyrirtækið hefur hug á að stækka og vera sem víðast fyrir viðskiptavini sína.

Scintilla kerti

Scintilla kerti

Þau hafa meðal annars átt í samstarfi við íslensk fyrirtæki eða tekið að sér einstök verkefni og má þar nefna þróun og framleiðslu á efnum sem lykta dásamlega. Einnig hafa þau hannað mynstur og efni sem klæðskerasniðin eru að þörfum viðskiptavinarins.

Scintilla

Hönnunarfyrirtækið Scintilla opnaði eins og áður sagði nýjan vef á dögunum www.scintilla.is í húsakynnum sínum í Skipholti 25. Margt var um manninn og skemmti fólk sér konunglega. DJ Styr sá um að  galdra fram ljúfa tóna og léttar veitingar voru í boði.

sc party1

Ingibjörg Vestmann, Ásrún Ágústsdóttir, Helga Lára Halldórsdóttir og Halldóra Sif Guðlaugsdóttir

 

sc party2

Guðrún Inga Ingólfsdóttir og Lilja Einarsdóttir

 

sc party3

Helena Jónsdóttir, Ingólfur Ásgeirsson og Sigrún Guðný Markúsdótttir Framkvæmdastjóri Scintilla.

 

sc party4

Aron már Ingham, Styr Júlíusson og Sami Nyyssöla.

Mynd 5: Katrín Káradóttir, Linda Björg Árnadóttir yfirhönnuður Scintilla og Arndís Kristjánsdóttir stjórnarformaður Scintilla.

sc party5

Hinar gullfallegu vörur eru til sölu í Skipholtinu þar sem fyrirtækið er til húsa, í Spark Design Space á Klapparstíg, Aurum í Bankastræti, Galleria að Laugavegi 77, Epal í Skeifunni, RB rúmum að Dalshrauni í Hafnarfirði, Kistu í Hofi á Akureyri og Motivo á Selfossi. Nánar má sjá sölustaðina HÉR. 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283