Margrét María Leifsdóttir, höfundur prjónabókarinnar vinsælu, Vettlingar, hannaði þessa glæsilegu og litríku vettlinga sérstaklega fyrir afmælisrit Kvennablaðsins.
Grunnuppskrift að vettlingum
Vettlingarnir eru prjónaðir frá stroffi og upp á sokkaprjóna. Fyrir vinstri vettling er munstrið lesið frá hægri til vinstri og fyrir hægri vettling lesist munstrið frá vinstri til hægri.
Hér er notað Lotus Yarns frá Garnbudin.is.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3.
Prjónfesta: 15 l x 20 umf. á prjón nr. 3 = 5×5 sm.
Stroff
Fitjið upp 48 lykkjur á prjóna nr 2,5. Skiptið lykkjum jafnt á 4 prjóna. Prjónið stroff í hring, 2 sléttar, 2 brugðnar lykkjur til skiptis. Prjónið þar til stroff mælist 4 sm. Skiptið yfir á prjóna nr. 3.
Belgur
Prjónið eftir munstri. Þegar komið er að því að merkja fyrir þumli prjónið 9 lykkjur með aukabandi í öðrum lit. Færið þessar 9 lykkjur aftur yfir á vinstri prjón og prjónið þær aftur samkvæmt munstri. Prjónið áfram eftir munstri þar til komið er að úrtökum.
Á prjónum 1 og 3: Takið 1 lykkju fram af óprjónaða, prjónið eina lykkju, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna og prjónið svo til enda.
Á prjónum 2 og 4: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum, prjónið 2 lykkjur saman. Takið þannig úr 1 lykkju á hverjum prjóni í hverri umferð þar til 3 lykkjur eru eftir á hverjum prjóni (12 lykkjur alls). Slítið frá og dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru.
Þumall
Fjarlægið aukabandið og takið upp lykkjur með prjónum nr. 3 með þeim garnlit sem notaður er í næstu umferð á belg. Takið að auki upp 3–4 lykkjur í hvorri hlið þumals til að koma í veg fyrir að göt myndist (alls 23–25 L). Skiptið lykkjum jafnt á 4 prjóna. Prjónið tvær lykkjur saman í hvorri hlið þumals í næstu umferðum þar til 20 lykkjur eru eftir. Prjónið þar til þumall mælist 5 sm.
Úrtaka á þumli er prjónuð eins og á belg vettlingsins þar til 8 lykkjur eru eftir. Slítið frá og dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru.
Frágangur
Gangið frá endum. Þvoið í höndunum og pressið.
Ef þú ert í jólaskapi má einnig gera þá í þessum jólalegu litum eins og sést hér en það var en Regína Birkis hannyrðakona reif upp prjónana og prjónaði þá í hefðbundinni útgáfu eins og hér að ofan en einfaldari jólaútgáfu má líka sjá hér: