Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trú, von og kærleikur

$
0
0

Glæstur ferill, fegurð og vingjarnleg nærvera Guðrúnar Ásmundsdóttur hafa gert hana að einni okkar ástsælustu leikkonum fyrr og síðar. Það er freistandi að ætla að líf hennar hafi alltaf verið auðvelt, en barnæska hennar var síður en svo dans á rósum. Guðrún fæddist á Laugavegi 2 í Reykjavík 19. nóvember 1935 og var þriggja ára þegar móðir hennar dó. Systkinin Guðrún og Páll, sem þá var nýorðinn sex ára, fengu ‘frjálst uppeldi’ hjá föður sínum. Páll fékk að breyta eldhúsinu í efnafræðirannsóknarstofu og Guðrún breytti stofunni í leikhús. Þar kom hún fram með blóm í hárinu og flutti ljóðið Helga Jarlsdóttir eftir Davíð Stefánsson. Leikkonan unga vílaði heldur ekki fyrir sér að fara út á Laugaveg og sækja áhorfendur sem fengu ókeypis ljóðaupplestur. ‘Þetta var upphafið að leiklistarferlinum,’ segir hún.

Enda var Guðrún enn kornung, þegar hún fór í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og lauk síðar leikaraprófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og fór þaðan í The Central School of Speech Training and Dramatic Art í London.

gudrun.as.erlingur.Brúðuheimili.73

Guðrún og Erlingur Gíslason í aðalhlutverkunum í Brúðuheimili eftir Ibsen, sýnt í Þjóðleikhúsinu 1973.

Sjálf hitti ég Gunnu fyrst þegar ég var 7 ára, það var stuttur skóladagur og hún var að létta undir með móður minni og stallsystur sinni með því að taka á móti mér síðdegis. Þetta var í bjartri íbúð á Melunum, Sissa var í vöggu inni í herbergi og Gunna og íbúðin voru eins og úr amerískri bíómynd – hún með lagt ljósa hárið og allt nýtt og hreint innandyra. Kynni Gunnu við fjölskyldu mína höfðu þó hafist um sjö árum fyrir fæðingu mína, því hún var skólasystir Hönnu móðursystur minnar og þekkti þannig ömmu mína, Guðrúnu Þórdísi. Þær nöfnurnar náðu vel saman, enda með líka lund, báðar trúaðar, vænar og vel liðnar, góðar og fallegar. Gunna man vel eftir ömmu og eins og hún segir sjálf: ‘Besti matur sem mömmuleysinginn af Laugavegi 2 fékk í uppvextinum, var þegar mér var alltaf boðið að borða með fjölskyldunni á Óðinsgötunni.’

gudrun.as.barnabörn

Guðrún og barnabörnin; Guðrún Birna Jóhannsdóttir, Kormákur Örn Axelsson, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Rakel Mjöll Leifsdóttir, Viktor Már Leifsson, Íris María Leifsdóttir, og Sólveig Katrín Ragnarsdóttir. Ljósm. Birkir Brynjarsson.

En ekki halda að Guðrún Ásmundsdóttir sé einhver klisjuljóska, þótt henni hafi verið gefin fegurð og bjartsýni í vöggugjöf. Því á sex áratuga leikhússtarfi, hefur hún sýnt og sannað að hún er annað og meira en þessi káta ingenue sem leikhúsið sá upphaflega í henni. Þetta sannaði hún rækilega í Nóru, aðalhlutverkinu í Brúðuheimilinu eftir Ibsen, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1973 og ekki síður sem einn helsti baráttumaðurinn fyrir byggingu Borgarleikhússins á sínum tíma og sem leikstjóri og höfundur margra leikverka. Meðal þeirra eru Kaj Munk, sem var leikið í Hallgrímskirkju, í Vartov-kirkju í Kaupmannahöfn og í Veddersö þar sem Kaj Munk var prestur í 20 ár, en fyrir verkið var hún sæmd Kaj Munk-verðlaununum. Guðrún hefur auk þess samið, uppfært og sýnt víða um land dagskrárnar Fjársjóð minninganna, Og þá kom stríðið og Jól í Kallafjöllum. Hún hélt upp á 50 ára leikafmæli sitt með hinum vel heppnaða einleik Ævintýri í Iðnó, 2005, en þar sá Ragnar, sonur hennar, um leikmyndina og Sigrún Edda, dóttir hennar, var leikstjóri.

gudrun-as.börn

Guðrún og börnin; Sigrún Edda, Leifur og Ragnar

Hún óx. Og hún óx. Listamaðurinn Guðrún Ásmundsdóttir er einstök. Hún er eilífðarsál; tekur lífinu opnum örmum og er full hlýju og húmors til samferðafólks og umheimsins.

Mörg ár liðu, þar til ég leitaði til Gunnu Ás á ný. Þá var hún einnig farin að miðla í gegnum trú sína og tók ljúfmannlega í það, þegar ég bað hana um að við bæðum saman. Það er ekki vottur af helgislepju í trúariðkun Gunnu Ás, hins vegar er þar forvitni fræðimannsins og einlægar, persónulegar túlkanir á ritningunni. Því langar mig að deila með lesendum trúarhugvekju eftir hana:

Óhagkvæmt, en nauðsynlegt

Jesús var í Betaníu í húsi Símonar líkþráa. Kom þá til hans kona og hafði alabastursbauk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði. Við þessa sjón urðu lærissveinarnir gramir og sögðu: „Til hvers er þessi sóun? Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.“ Jesús varð þess vís og sagði við þá: „Hvað eruð þið að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér. Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur, en mig hafið þið ekki ávallt.“ Matt: 26:9-11

Konur gera oft svo undarlega hluti og ekki er allt hagkvæmt sem þær taka upp á. Aldrei myndi karlmaður haga sér eins og konan í Betaníu. Að ganga inn í hús manns sem haldinn var líkþrá, alls óhrædd við að smitast, eitthvað hefur nú erindið verið brýnt. Frelsara hennar og velgjörðamanni hafði ekki verið boðið til borgarstjórans í Betaníu í mat. Heldur var það Símon líkþrái sem fékk tignasta gest jarðar í mat til sín. Sjálfan son Guðs, sem heldur ekki virtist haldinn smithræðslu. Konan hefur þó verið hrædd í þessu ókunna húsi, hrædd við fylgdarmenn Jesú sem horfðu á hana fullir undrunar og í svip sumra þeirra mátti sjá hneykslun yfir framferði hennar. Um leið og dýrmæt olían rennur yfir hár frelsarans og vanga, fara fátækleg híbýli líkþráa mannsins að ilma. Og ég held að lærisveinarnir hafi notið ilmsins, annað var ekki hægt. En þeir máttu til með að vekja aðdáun meistara síns með athugasemd um hvað hagkvæmara mætti gera við peninga, en bruðl með rándýra olíu! Það mætti segja mér að ef þetta matarboð hefði verið haldið hér í Reykjavík í dag, myndu þeir hafa lagt til í fúlustu alvöru að betra væri að fjárfesta í hlutabréfum – og deila hagnaði á meðal fátækra, eftir að arðurinn væri kominn í hús. Þeir bíða spenntir eftir viðbrögðum meistara síns við þessum gáfulegu og praktísku athugasemdum um olíu, sem allir geta lifað án. En svar hans kemur öllum viðstöddum á óvart.

HVAÐ ERUÐ ÞIÐ AÐ ANGRA KONUNA? GOTT VERK GJÖRÐI HÚN MÉR.

Það er ekki víða í Biblíunni sem við sjáum samferðamenn og konur sýna Jesú umhyggju og kærleika á meðan hann var enn á meðal lifenda. Kærleiksrík umhyggja helst heldur ekki alltaf í hendur við hagkvæma vörslu á peningum. En þar sem Jesús hékk kvalinn á krossinum hafa þessar dýru ilmjurtir í olíunni sem hellt var yfir höfuð hans kvöldið áður, hitnað, tekið að ilma og veitt honum huggun. Hann hefur hugsað um vinina sem elskuðu hann. Konurnar sem sýndu honum þakklæti sitt og kærleika með því að nudda fætur hans dýrum smyrslum og hella yfir höfuð hans þeim ilmi, sem dýrmætastur er á jörð. Ilmi sem er dýrari en allar fjárfestingar innanlands og utan. Ilmi vináttunnar og kærleikans.

* * *

Íslenskir leikhúsgestir og listunnendur geta þakkað Guðrúnu margt. Fyrir allt það sem hún hefur gefið okkur, allt það sem hún er enn að gefa okkur. Hún er þarna ennþá, með annan fótinn í fortíð sem má ekki gleymast, hinn, sem alltaf er að drífa sig í næsta verkefni: Vivat, Guðrún!

* * *

Sjáðu hana á sviðinu: Sunnudagana 6. og 13. desember, kl. 15, verður Guðrún með jóladagskrá í Hannesarholti ásamt Alexöndru Chernyshovu og Moniku Abendroth. Besta jólagjöfin yrði sú að vinir og vandamenn vildu njóta þessarar stundar með þeim.

En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. 

Fyrra Korintubréf 13:13

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283